Costa Meloneras


UPPLIFUN

Heimreiðin að hótelinu er einkar glæsileg, þar stendur m.a. gosbrunnur. Í kringum hótelið eru sjö garðar með mismunandi þemu.


VISTARVERUR

Herbergin eru rúmgóð og þægileg, innréttuð í nýtískulegum stíl og eru búin öllum nútíma þægindum, t.d. loftkælingu, gervihnattasjónvarpi, smábar, internettengingu (gegn gjaldi), öryggishólfi og síma. Stórar svalir með húsgögnum.

Baðherbergi eru marmaraklædd með sturtu og baðkeri, baðslopp og hárþurrku.


AÐSTAÐA

Við hótelið er glæsilegur og gróðursæll garður með bar og góðum sundlaugum. Sundlaugarnar eru fjórar, ein barnalaug og gerviströnd. Auk þess eru þrír nuddpottar í sundlaugargarðinum.

Í heilsulindinni Gran Spa Corallium eru í boði (gegn gjaldi) fjölbreyttar vellíðunar- og snyrtimeðferðir fyrir þá sem hægt að láta dekra við sig. Meðal þess sem er í boði er nudd, fjölbreyttar vatnsmeðferðir, gufuböð og andlitsböð.


AFÞREYING

Dagleg skemmtidagskrá, líkamsrækt, tölvuver (gegn gjaldi) keilusalur, tennisvöllur (gegn gjaldi), minigolf og leiktækjasalur.

Á hótelinu er auk þess snyrtistofa, hárgreiðslustofa, skartgripaverslun og snyrtivöruverslun.


VEITINGASTAÐIR

Nokkrir skemmtilegir barir eru á hótelinu eins og píanóbar, Arenal og Laguna sundlaugarbarirnir, enskur pöbb, bjórbar, netkaffi og síðast en ekki síst, Bolero barinn sem er með skemmtun á kvöldin með lifandi tónlist og dansi.

Nokkur veitingahús eru á hótelinu, þrjú þeirra eru með hlaðborð en önnur þrjú eru á la carte.


FYRIR BÖRNIN

Barnaklúbbur með dagskrá fyrir 4-12 ára börn og sérstök barnalaug.


STAÐSETNING

Á skemmtilegum stað á Meloneras, um 200 m frá ströndinni. Um 1,5 km eru í vatnagarð, 500 m í sandöldurnar í Maspalomas og 800 m í vitann í Maspalomas.

Meloneras er um 6 km frá Ensku ströndinni, um hálftíma akstur, 40 km, frá flugvellinum í Las Palmas.


ANNAÐ

Hér má sjá myndir úr vefmyndavél hótelsins.


SJ 07.08


KORT