Hotel Dunas Mirador

UPPLIFUN

Fjölskylduvænt hótel á Sonnenland / Maspalomas svæðinu. Hótelið er í sex byggingum með stórt sundlaugasvæði í miðjunni. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem matvörumarkað, apótek, veitingastaði og fleira. Þar sem hótelið er staðsett um 3,5 km frá strönd býður hótelið uppá fríar ferðir 4 sinnum á dag frá hóteli niður á strönd og tilbaka. Einnig gengur strætó á 15 mín. fresti.


VISTARVERUR

Einföld, snyrtileg og rúmgóð herberbergi. Á öllum herbergjum er gervihnattasjónvarp, sími, öryggishólf gegn gjaldi og svalir eða verönd.


AÐSTAÐA

Stór og góður garður með tveimur sundlaugum, sérstakri barnalaug, sólbekkjum og sólhlífum, nuddpotti og leiksvæði fyrir börnin.


AFÞREYING

Tveir tennisvellir, Billjarð, borðtennis og fótboltaspil. Hægt er að komast á internet. Á hótelinu er einnig hægt að panta nudd og komast í þvottavélar. Allt hér að ofan er gegn gjaldi nema borðtennis.


Tvisvar í viku er skemmtidagskrá og sýningar.


VEITINGASTAÐIR

Á hótelinu er hlaðborðs-veitingastaður, snarlbar með létta rétti og sundlaugarbar. Á hótelinu er innifalinn matur og innlendir drykkir.
Þeir farþegar sem kaupa "allt innifalið" hafa aðgang að eftirfarandi:

Morgunverðarhlaðborð
Drykkir við sundlaug frá 10:30 til 22:30
Snarl við sundlaugina frá 13:00-15:00
Kaffi, te og kökur frá 16:30-17:30
Hádegisverður
Kvöldverður
Allir innlendir drykkir 09:30-22:30


FYRIR BÖRNIN

Sérstök barnalaug og leiksvæði fyrir börnin.

Sjá á korti
Sjá heimasíðu
BYGGING

Fjöldi herbergja (437)
Fjöldi hæða (5)
Byggt árið (1998)
Gestamóttaka (Já)
Hentugt fyrir fatlaða (Já)
Lyftur (true)

AÐSTAÐA

Sundlaug (Já)
Barnalaug (Já)
Nuddpottur (Já)
Veitingastaður (Já)
Sólbekkir (Já)
Billjarð (Já)
Aðgengi fyrir fatlaða (Já)
Handklæði við sundlaug (Já, gegn gjaldi)
Garður (Já)
Leiksvæði fyrir börn (Já)
Internet aðgangur (Já)
Leiktækjasalur (Já)
Matvöruverslun (Í nágrenni)
Tennisvöllur (Já, gegn gjaldi)
Bar (true)

VISTARVERUR

Sími í herbergi (Já)
Gervihnattasjónvarp (Já)
Öryggishólf (Já, leiga)
Svalir/Verönd (Já)

ÞRIF OFT Í VIKU

Þrif (5 x í viku)
Handklæðaskipti (3 x í viku)
Skipt á rúmum (1 x í viku)

ANNAÐ

Barnavænt (Já)
Fjarlægð frá strönd (Um 3.5 km)

HEIMILISFANG


KORT