Lopesan Baobab


UPPLIFUN

Stórglæsilegt hótel sem er hannað undir miklum áhrifum frá Afríku, og heitir eftir Baobab trénu sérstaka.

Hótelið er á frábærum stað í Maspalomas / Meloneras, skammt frá vitanum, Faro. Hótelið sem er nýlega opnað er þriðja lúxushótel Lopesan-keðjunnar á Gran Canaria og það glæsilegasta, en fyrir eru Gran Villa del Conde og Costa Meloneras.


VISTARVERUR

Herbergin eru glæsilega innréttuð í mildum brúnum tónum og þar er nánast allur hugsanlegur lúxus, s.s. loftkæling, sími, öryggishólf (gegn gjaldi), smábar (gegn gjaldi), skrifborð, gervihnattasjónvarp og internet (gegn gjaldi). Á baðherbergjum er bæði sturta og stórt baðkar, hárþurrka og sloppar.

Frá svölum er útsýni yfir hafið, heillandi sandöldur, pálmalundi eða fjöll í fjarska.


AÐSTAÐA

Í stórum og mikilfenglegum sundlaugargarðinum verða samtals átta upphitaðar sundlaugar, ein barnalaug og gerviströnd með 3 nuddpottum.

Netkaffi, þar sem hægt verður að komast í nettengdar tölvur gegn gjaldi.


AFÞREYING

Hægt er að spila pool og borðtennis á hótelinu og tennis í næsta nágrenni. Á kvöldin verða í boði skemmtiatriði og sýningar.

Hægt er að spila golf á golfvöllunum Maspalomas Golf (3 km fjarlægð) og Meloneras Golf (500 m fjarlægð).


VEITINGASTAÐIR

Á hótelinu eru þrír veitingastaðir, hver um sig með mismunandi áherslur, t.d. verður sérstök áhersla á ferska sjávarrétti á sundlaugargrillinu, og veitingastaður sem býður allt það besta frá Afríku.

Einnig eru fjórir barir á hótelinu, þar sem áherslan getur verið á kaffi, ferska ávaxtasafa eða framandi kokteila.


FYRIR BÖRNIN

Í sundlaugargarðinum er sér svæði fyrir börnin - Panchi World - barnaklúbbur fyrir 4-12 ára, barnalaug og margt fyrir smáfólkið við að vera.


STAÐSETNING

Hótelið er á frábærum stað í Maspalomas / Meloneras, skammt frá vitanum, Faro. Baobab hótelið verður sannarlega flaggskip okkar í ár, enda fer þar saman glæsileg gisting og einstakt verð.


SJ 02.09

KORT