Gott að vita um Kanarí
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Vegna mismunandi þarfa viðskiptavina okkar, um ferðir til og frá flugvelli á gististaði erlendis, er þessi þjónusta nú valfrjáls og fyrir þá sem það kjósa.
Þeir sem vilja nýta sér akstur okkar erlendis með fararstjóra verða því að bóka og fullgreiða þjónustuna hér heima áður en lagt er af stað í ferð.
AA-fundir
Á Kanarí eru haldnir AA-fundir á íslensku.
Bílaleiga
Framvísa þarf gildu ökuskírteini og vegabréfi, lágmarksaldur leigutaka er 23 ár.
Drykkjarvatn
Það er betra að kaupa vatn til neyslu, þar sem vatnið á Kanarí er ekki eins gott og íslenska vatnið okkar. Það er okkur ekki skaðlegt en kaffið og teið verður betra ef hellt er á með keyptu vatni (agua mineral). Nauðsynlegt er að drekka meira en við gerum alla jafna heima.
Flugtími - vegalengdir
Flugtími til Las Palmas er um fimm og hálf klst. Flogið er í beinu leiguflugi og hægt að kaupa veitingar um borð.
Athugið að þegar flogið er út síðdegis er vissara að taka með sér nesti því þegar komið er á hótelið má gera ráð fyrir að flestir staðir séu lokaðir og erfitt að komast í máltíð fyrr en næsta morgun.
Frá Las Palmas til Ensku strandarinnar er um 30 mínútna akstur. Frá Ensku ströndinni til San Augustin 4 km, Bahia Feliz 7 km, Puerto Rico 18 km, Las Palmas 54 km.
Landið
Kanaríeyjar eru 7 talsins og eru samtals um 7.300 km 2 . Gran Canaria er þriðja stærsta eyjan, 1.532 km 2 og þar búa 825.000 íbúar. Á Kanaríeyjum eru samtals 2,1 milljón íbúar.
Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn er Evra (EUR). Reiknaðu út gengið á Oanda.
Greiðslukort
Kreditkort gilda í flestum verslunum og víða eru hraðbankar þar sem auðvelt er að taka út reiðufé. Mælt er með því að fólk noti hraðbanka, frekar en að nota kortin daglega. Athugið að nauðsynlegt er að hafa PIN -númer meðferðis. Bankar eru opnir mán. - fös. 9.00 -14.00, lau. 9.00 - 13.00. Athugið að ekki er hægt að fara inní bankaútibú og taka út af greiðslukorti.
Íþróttir
Tennis um 900 kr./klst. Golf, vallargjald u.þ.b. 16.000 kr./ 18 holu hringur.
Læknisþjónusta
Fararstjórar veita nánari upplýsingar.
Tímamunur
Sami tími og á Íslandi yfir vetrarmánuðina. Hér getur þú fundið út hvað klukkan er víða í heiminum .
Rafmagn
Sams konar tenglar og á Íslandi og 220 Volt.
Handfarangur
Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur.
Veðurfar
Heittemprað loftslag, en lega eyjanna skapar einstaklega milt veðurfar. Þó mælum við með að kulvísir farþegar hafi með sér sæng og létta peysu eða jakka til að vera í á kvöldin á tímabilinu desember til janúar.
Hitatafla
|
Meðalhiti
|
Nóv.
|
Des.
|
Jan.
|
Feb.
|
Mar.
|
Apr.
|
|
| - á daginn |
24 |
19 |
20 |
20 |
21 |
21 |
| - sjávar |
23 |
20 |
19 |
19 |
19 |
19 |
Skemmtanalíf
Mörg góð diskótek og dansstaðir eru á Ensku ströndinni. Í Kasbah hverfinu er mesta næturlífið og diskótekin opin til morguns. Einnig er fjöldi öldurhúsa þar sem hægt er að fá sér snúning. Mörg hótel bjóða uppá skemmtikvöld með ýmis konar sýningum.
Strandlíf
Fjölbreytt afþreying, brimbretti/seglbretti um 6000 kr./klst.(kennsla um 8,000 kr./tíminn). Köfun um 8.000 kr. með ferðum, útbúnaði og tryggingu (5 daga námskeið um 45.000 kr.) Fínkornótt sandströnd þar sem leigja má sólstóla og -hlífar (um 500 kr. á dag).
Sjóböð
Á flestum baðströndum gilda ákveðnar öryggisreglur. Athugið að misjafnt er hvort einhver er á öryggisvakt á ströndinni.
- Rauður fáni, bannað að fara í sjóinn, getur varðað sektum.
- Gulur fáni, aðgát skal höfð við böð.
- Grænn fáni, ládeyða, gott baðveður.
Sport og afþreying
Hjólabáta og sæketti er hægt að finna á Ensku ströndinni. Sjóskíði og seglbretti er hægt að leigja í Puerto Rico. Billjardborð og tennisvellir finnast víða. Minigolfgarðar eru á nokkrum stöðum. Tvær Go-Kart brautir eru á Gran Canaria, önnur í San Augustin og hin á Maspalomas.
Fuglagarðurinn Palmitos Park er mjög stór og fallegur garður og í honum eru til sýnis hundruðir tegunda fugla. Þar er einnig fiðrildahús, orkídeuhús og mjög stórt fiskabúr og margt fleira. Garðurinn er rétt hjá Maspalomas og hægt er að taka strætisvagn þangað.
Stutt frá Maspalomas er Aqualand , skemmtilegur vatnagarður fyrir alla fjölskylduna.
Cocodrilo Park er dýragarður í um það bil hálftíma aksturs fjarlægð frá Ensku ströndinni. Þar eru ótal tegundir krókódíla ásamt fjölda annara dýra sem er gaman að skoða. Þangað gengur rúta sérstaklega merkt garðinum.
Skemmtigarðurinn Holiday World hefur upp á mikið að bjóða. Rússíbani, parísarhjól og fleira skemmtilegt er í boði.
Í Sioux City ertu komin aftur í villta vestrið, skemmtilegar sýningar og lítill dýragarður fyrir börnin. Garðurinn er staðsettur í San Agustín.
Matur
Úrval veitingastaða frá öllum heimshornum er á Ensku ströndinni. Kanarísk matargerð er einnig spennandi með ferskt sjávarfang og ýmiskonar smárétti eins og gufusoðnar kartöflur með mojo-sósu, potaje grænmetissúpu og fleiri gómsæta rétti.
Veitingastaðir
Fjölbreyttir veitingastaðir frá flestum heimshornum. Léttur hádegisverður kostar oft um kr. 5-600
Verslun
Úrval verslana er í Las Palmas og þar má nefna El Corte Ingles, Zara, Mango, Cortefiel og ótal skóverslanir og fleira. Flestar verslanirnar eru við Avenida Mesa y Lopes og í verslunarmiðstöðinni Las Arenas. Í Vecindario er nýleg verslunarmiðstöð, Centro Comercial Atlantico, þar sem mikið er af sömu verslunum og í Las Palmas. Markaður er í Maspalomas miðvikudaga og laugardaga frá 9:00 - 13:00 þar sem prútt er algengur verslunarmáti.
Netkaffihús
Hægt er að komast á internetið víða á Kanaríeyjum til dæmis í Cita og Yumbo. Margir gististaðir bjóða einnig internet aðgang gegn vægu gjaldi.
Samgöngur
Strætisvagnar ganga á milli Ensku strandarinnar og Maspalomas (fargjald um 250 kr.) og niður á strönd. Leigubíll sömu vegalengd kostar um 700 kr. Innan Ensku strandarinnar kostar leigubíll oft 500-700 kr. Leigubíll milli Ensku strandar og Sonnenland kostar um 700-900 kr. Rúta til Puerto Rico kostar um 500kr. og til Las Palmas um 600 kr.
Tryggingar
Öllum er ráðlagt að huga að ferðatryggingum áður en lagt er af stað í ferðalag og athuga að allir fjölskyldumeðlimir séu vel tryggðir. Gott er að hafa meðferðis tryggingarskírteini.
Sjá upplýsingar um nýtt tryggingakort
Þjófnaður
Varist að hafa peningaveski í rass- eða brjóstvösum. Hengið ekki handtöskur á stólbak eða leggið frá ykkur. Takið ekki með ykkur verðmæti á ströndina og passið eigur ykkar alltaf vel. Mælt er með því að hótelgestir leigi öryggishólf og geymi öll verðmæti og vegabréf í þeim.
Þjórfé
Þjónustugjöld eru yfirleitt innifalin en hefð er að gefið sé þjórfé t.d. á veitingastöðum og leigubílum og þjónustustúlkur sem þrífa íbúðir.
Þjónusta okkar erlendis
Íslenskir fararstjórar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann. Upplýsingar um viðtalstíma og nauðsynleg símanúmer er að finna í upplýsingamöppum á gististöðum.