Kort af hótelum o.fl.
Puerto de Mógan er fallegur bær í 25 mín. akstursfjarlægð frá Ensku ströndinni. Litlu þröngu göturnar eru heillandi og notalegt að setjast á kaffihús og skoða mannlífið. Kannski má sjá einhvern frægan ef vel er að gáð.
Gaman er að aka til Aruca, en þangað tekur aðeins eina klst að aka frá Ensku ströndinni. Þar er fallega dómkirkja og rommverksmiðja sem gaman er að líta inn í.