Skoðunarferðir

Skráning í skoðunarferðir fer fram í viðtalstíma og þjónustusíma fararstjóra og er greitt fyrir þær hjá fararstjóra.

Allar ferðir eru greiddar í Evrum. Skoðunarferðir eru með íslenskum fararstjóra ef þátttaka er næg.

Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn, og að sumar ferðir geta verið háðar lágmarksþátttöku.


Sveitaferð sem seint gleymist

Fataga

Keyrt er í gegnum Fataga. Stoppað á útsýnisstaðnum El Castillo í 20 mínútur þar sem við sjáum yfir til Santa Lucía. Keyrum við svo áfram til búgarðarins Taidía sem tekur 20 mínútur. Þar stoppum við í tvær klukkustundir. Þar er margt að sjá. Asnar, strútar, hænur, kindur, geitur, kanínur og kettir. Gaman er að ganga um fallegann garðinn, þar eru t.d. appelsínutré og annar fallegur gróður. Innifalið í verði ferðarinnar er: Léttar veitingar og asnareið sem tekur um klukkustund. Þaðan förum við til bæjarins Santa Lucía sem er í 10 mínútna keyrslu frá búgarðinum. Þar stoppum við í 30 mínútur þar sem farþegar hafa frjálsan tíma. Þaðan er síðan haldið heim á leið í gegnum Aguimes. Farið er um morguninn kl. 09:00 og komið til baka kl. 15:00

Hringferð um eyjuna

Puerto Rico

Í ferðinni fáum við að kynnast fjölbreytileika eyjunnar, bæði gróðursælum dölum og þurrum klettabeltum.

Farþegar eru sóttir á gististaði snemma morguns og er ekið sem leið liggur fram hjá Puerto Rico og inn í Mogán dalinn. Þaðan er farið yfir fjöllin og niður að San Nicolas sem er í dalverpi á vesturströnd eyjarinnar.

Eftir stopp og stuttan göngutúr er keyrt aftur upp í fjöll og yfir til Puerto de las Nieves þaðan sem ferjurnar fara til Tenerife. Í Puerto de las Nieves er snæddur kanarískur málsverður en einnig gefst tími til að líta í verslanir á staðnum eða að njóta útsýnisins.

Frá Puerto de las Nieves er keyrt til Arucas þar sem stoppað er í garði greifynjunnar þar sem gefur meðal annars að líta sýnishorn af þeim gróðri sem er að finna á eyjunni. Frá Arucas er síðan keyrt um Las Palmas og eftir hraðbrautinni niður að Ensku ströndinni.

Verð
Fullorðnir: EUR 50
Börn: EUR 25


Markaðurinn í Puerto de Mogán

Puerto de Mogán er nýlegur ferðamannabær, skemmtilega hannaður og fallegur. Bærinn er stundum kallaður litlu Feneyjar vegna síkjanna sem eru milli húsa. Í bænum eru veitingastaðir og spennandi verslanir á hverju strái. Þar er einnig smábátahöfn, þaðan sem siglingar eru á ýmsa áfangastaði á eyjunni.

Í Puerto de Mogán er útimarkaður á föstudögum og skapast oft mikil stemmning og bærinn fyllist af fólki sem er að versla eða situr og fær sér hressingu á einhverju af þeim skemmtilegu veitingahúsum sem eru meðfram hafnarbakkanum.

Ferðin hefst um kl. 8.00 og er um hálftíma akstur er til Puerto de Mogán, og þegar þangað er komið er gefinn frjáls tími í til að rölta um markaðinn og höfnina og njóta þess að vera í þessu fallega umhverfi.

Um hádegisbil hittumst við aftur og förum þá í siglingu þar sem siglt er frá Puerto de Mogán yfir til Puerto Rico. Siglingin tekur tæpa klukkustund og á leiðinni njótum við útsýnis yfir strandlengjuna frá hafi og er þessi sigling ógleymanleg. Í Puerto Rico bíður rútan og ekur okkur heim á gististaðina, og verðum við komin þangað um tvöleytið eftir hádegi.

Verð
Fullorðnir: EUR 25
Börn: EUR 15