Enska ströndin

Enska ströndin, eða Playa del Ingles, er staðurinn sem Íslendingar hafa valið í gegnum árin. Nafnið á bæði við ströndina og bæinn, sem Íslendingarnir elska. Ströndin teygir sig til San Augustin í austri og Maspalomas í vestri. Góð gönguferð er út í vitann í Maspalomas og sandöldurnar freistra margra. Íbúðir og hótel eru í hundraða tali og allir þekkja verslunarkjarnana Yumbo Center, Kasbah, Cita og Faro 2.

Verslanir, barir, kaffihús og veitingastaður eru út um allt og algengt að heyra íslensku talaða á öðru hverju götuhorni. Úrval afþreying fyrir alla aldurshópa. Útskriftarhópar og eldriborgar, fjölskyldur og útivistarfólk – allir finna eitthvað við sitt hæfi.