Puerto de Mogán
Puerto de Mogán, oft þekkt undir nafninu litlu Feneyjar, er lítill bær í 25 mínútna fjarlægð frá Ensku ströndinni.
Bærinn, sem þekktur er fyrir besta veðrið á Kanaríeyjum, byggist upp frá höfninni með litríkum lágreistum húsum en ekkert þeirra er hærra en þriggja hæða. Við húsin eru einstaklega fallegir garðar með miklu blómahafi.
Höfnin er stórglæsileg með fjölda girnilegra veitinga- og kaffistaða með aðstöðu til að borða undir berum himni og nóta útsýnis yfir smábátahöfnina og mannlífið. Á kvöldin er hægt að fara í rómantíska göngu og njóta sólarlagsins.
Við hliðina á höfninni er lítil falleg strönd þar sem hægt er að leigja sólbekki.
Farþegar sem dvelja í Puerto de Mogán eru á eigin vegum. Akstur til og frá flugvellinum er ekki í boði og fararstjórar koma ekki í hótelheimsóknir.