Puerto Rico

Af mörgum talinn veðursælasti staður eyjunnar

Puerto Rico er í lítilli fallegri vík, á suðvesturhluta Gran Canaria. Staðsetningin hefur þau áhrif að veðurfarið er mjög stöðugt allt árið um kring. Við smábátahöfnina er urmull af veitingahúsum þar sem notalegt er að sitja, fá sér hressingu og horfa á smábátaeigendur njóta lífisins.

Ströndin í Puerto Rico er lítil og afar vinsæl jafnt hjá heimamönnum sem gestum. Eftir nokkurra ára hlé bjóðum við gistingu á þessum fallega stað, sem þegar er orðinn Íslendingum vel kunnur. Æ fleiri sækjast eftir að dvelja í þessum litla friðsæla bæ.