Marmaris
Perla Tyrklands
Marmaris er einn vinsælasti ferðamannastaður á Tyrklandi, fallegur strandbær í skógi vöxnum fjallshlíðum. Bærinn er lítill, þægilegt að fara þar um og fjöldi ferðamanna setur svip á mannlífið. Útsýni yfir Marmarisflóa er fagurt, sjórinn glitrar og seglskútur í hundraðatali setja svip sinn á umhverfið.
Í gamla bænum eru basarar og útimarkaðir þar sem gaman er að versla og prútta. Gera má stórgóð kaup á merkjavörum eða ná sér í góðar eftirlíkingar af merkjavarningi á enn lægra verði. Síðan er hægt að setjast niður með bolla af tyrknesku kaffi í einhverju kaffihúsanna eða rölta eftir þröngum göngugötunum.
Marmaris að kvöldlagi er paradís fyrir lífsglaða ferðamenn. Veitingastaðir og barir eru meðfram ströndinni og einnig inni í bænum. Þeir sem vilja fara út á lífið geta valið úr fjölmörgum klúbbum og börum við “Barstrætið". “Barstrætið" endar við eina af stærstu höfnum Tyrklands. Þar ægir saman fallegum skonnortum, fiskibátum, seglskútum, sportbátum og stórum og glæsilegum lystisnekkjum. Þetta svæði er nefnt Yesil Marina og þar eru fræg veitingahús og fínar verslanir.
Fyrir fáum árum var Içmeler lítið fiskimannaþorp í útjaðri Marmaris og aðeins hægt að komast þangað sjóleiðis. Í dag er Içmeler einn eftirsóttasti ferðamannastaður Tyrklands vegna legu sinnar við Marmaris-flóann.
meira
Á Marmaris er kjörið tækifæri til að leigja seglskútu og njóta dýrðarinnar á Marmarisflóa. Þetta er frábært siglingasvæði fyrir bæði byrjendur sem og þaulreynda siglingakappa. Í þessari siglingaparadís, gætir nánast ekki flóðs og fjöru. Hafið er spegilslétt, tært, hlýtt og frábært til lengri og skemmri siglinga.
meira
Tyrkland tilheyrir bæði Evrópu (3%) og Asíu (97%). Landamæri landsins markast af Sýrlandi, Íran,
Írak, Armeníu, Georgíu, Búlgaríu og Grikklandi. Stór hluti landsins liggur að hafi. Norðurhlutinn
liggur að Svartahafi, vesturströndin að Eyjahafi og suðurströndin að Miðjarðarhafi.
meira