Svæði: Marmaris
Eitt besta hótelið í Marmaris, klassískt, virðulegt og vandað. Grand Azur stendur alveg við ströndina, í glæsilegum garði með sérlega skemmtilegri sundlaug, vatnsrennibraut og þremur tennisvöllum. Heilsulind er á hótelinu með sauna, tyrknesku baði og nuddi. Sólstólar og handklæði við strönd og laug eru innifalin í verði.
Meira