Grand Ideal
UPPLIFUN
Hotel Grand Ideal Premium er 5 stjörnu hótel staðsett við aðalgötuna í Marmaris. Góð sólbaðsaðstaða við laugina. Á hótelinu er líkamsrækt, innisundlaug, sauna, tyrkneskt bað og lítil matvöruverslun. Við hótelið er 60 metra löng sundlaug með stórri rennibraut við annan endann og barnalaug. Skemmtidagskrá flest kvöld vikunnar bæði fyrir fullorðna og börn.
VISTARVERUR
Herbergin eru ágætlega rúmgóð öll með svölum eða verönd og eru loftkæld. Sum herbergin eru með sjávarsýn. Lítill ísskápur er til afnota á herbergjum.
Á Grand Ideal er allur matur or drykkir innifaldir..
07:30 - 10:00 - Morgunverðarhlaðborð - fjölbreytt úrval.
10:00 --11:00 - Seinni morgunverður. Minna úrval.
12:30 - 14:00 - Hádegisverður af hlaðborði. Gott úrval. .
11:00 - 16:00 - Matur við sundlaugina (pizzur, pasta, salat og kjötréttir).
19:00 - 21:30 - Kvöldverður af hlaðborði. Val um drykki. 11:00 - 23:00 - Barþjónusta. Innlendir drykkir í boði..