Skútan Íslandssól

Siglingaævintýri í Tyrklandi.

Kjörið fyrir vinahópa og fjölskyldur - 4-6 manna hópar

Úrval-Útsýn kynnir nýjan og spennandi ferðamöguleika í samstarfi við íslenska skútufyrirtækið Seaways-sailing.  Ógleymanlegt ævintýri á einu besta siglingasvæði í Miðjarðarhafinu.  Undirfagurt landslag, heillandi menning og frábær matargerð ásamt því að vakna upp á hverjum morgni á nýjum áfangastað.   Fá sér góðan sundsprett, borða morgunmat um borð, hífa upp seglin og láta vindinn taka þig af stað á vit nýrra ævintýra.  Hljómar spennandi ?  Komdu þá með í þessa frábæru upplifun.
Um er að ræða 7 daga siglingu  ásamt dvöl í 3 eða 4 nætur í skútubænum Göcek.  Farþegar eru sóttir og keyrðir á flugvöllinn í Milas sem er í u.þ.b. 2 1/2 klst akstursfjarlægð.
Strandlengjan er mjög fjölbreytt og og margt áhugavert að skoða, svo sem fornar borgarrústir, nýtískulegar skútuhafnir, fallegar strendur og fjölmargir litskrúðugir markaðir. Af afþreyingu má telja sund, snorkl, fjallgöngur, fallhlífaflug eða bara að sláka á í sólinni við lestur góðrar bókar. Það er eitthvað í boði fyrir alla. 
Á daginn er siglt um voga og víkur út frá Göcek svæðinu með skipstjóra sem þekkir hvern krók og kima, synt, snorklað og leikið sér.  Borinn er fram léttur hádegisverður um borð og á kvöldin er farið í land og snætt á hinum fjölbreyttu veitingahúsum sem gjarnan standa við hafnirnar eða í litlum bæjunum þar í kring.  Gist verður á nýjum stað á hverju kvöldi.  Um borð í hverri skútu eru allt að 6 manns, en lágmark er 4.  Mjög vel útbúnar seglskútur með 3 svefnherbergjum sem eru búin tvíbreiðum rúmum.  Tvö salerni með sturtu og seturstofa fyrir 8 manns.  Á efra dekki eru sæti fyrir 6-8 manns með borði á milli.  Venjulega er öll dagleg viðvera uppi á dekki, þar er borðaður bæði morgun- og hádegisverður.  Öll sængurföt og handklæði eru til staðar um borð.  Stór ísskápur og kælibox og nægt geymslupláss fyrir allt það helsta. 
Eftir að 7 daga siglingu líkur er dvalið í íbúð í Göcek í 3 eða 4 nætur.  Íbúðin er með 2 svefnherbergjum, eldhúsi, stofu og stórum svölum til suðurs.  Aðganguri að sundlaug í 50 metra fjarlægð.  Stutt í miðbæinn í Göcek - u.þ.b. 3 mínútna gangur.
Göcek var lítið fiskimannaþorp en hefur, síðustu 10 ár, breyst í vel þekktan lifandi bæ sem er eftirsóttur af siglingafólki.  Bærinn er einn af vinsælustu skútuhöfnum á Lycian strönd Tyrklands.  Fjölbreytt þjónusta er í bænum, verslanir, markaðir, góðo veitingahús, hótel og gistihús. Frá Göcek er stutt í allskonar skoðunar og skemmtiferðir.

Innifalið: Flug, gisting með morgun- og kvöldverði í 7 nætur, akstur til og frá höfn í Göcek, dvöl í íbúð í Göcek í 3-4 nætur og fararstjórn.