Forum Residence
ALMENNT
Nýlegt og glæsilegt íbúðahótel, vel staðsett við aðalgötuna í Marmaris. Ströndin er í göngufæri og stutt er að sækja alla þjónustu eins og verslanir og veitingastaði.
Við íbúðabygginguna er ágætur sundlaugargarður með góðri aðstöðu til sólbaða, barnalaug og snakkbar. Stórmarkaður er við hliðina á íbúðahótelinu og góð eldunaraðstaða.
VISTARVERUR
Glæsilegar, nýtískulegar og mjög rúmgóðar íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum. Allar íbúðir eru með eldhúsi, stofu, loftkælingu (5 evrur á dag fyrir hverja loftkælingu), sjónvarpi, síma og þráðlausri nettengingu. FRÁ OG MEÐ 29.5.10 og út sumarið er loftkæling innifalin í verði.
Vel búið baðherbergi með baðkari og/eða sturtu. Svalir eru við allar íbúðir.
OKKAR MAT
Forum er frábær kostur með stórum og björtum íbúðum á skemmtilegum stað.