Club Turban

UPPLIFUN

Nýlegt hótel við fallega einkaströnd í útjaðri Marmaris. Frábær og fjölbreytt sólbaðsaðstaða við sundlaugar og á ströndinni. Hótelið skiptist í aðalbyggingu og fjölda smærri bygginga sem standa einkar fallega á stóru, skógi vöxnu svæði sem teygir sig niður á fallega strönd sem þjónar nánast eingöngu gestum hótelsins. Hér er alltaf líf og fjör en hótelið rúmar allt að þúsund manns.

Á hótelinu er "allt innifalið": morgun- hádegis- og kvöldverður ásamt margskonar hressingu sem hægt er að njóta allan daginn. Allir innlendir drykkir eru án endurgjalds. Þjónusta er veitt allan sólarhringinn.

VISTARVERUR

Í aðalbyggingu og smærri byggingum hótelsins eru ágæt hótelherbergi þó þau séu ekki stór með loftkælingu. Möguleiki er að fá fjölskylduherbergi með tveimur tveggja manna herbergjum sem hægt er að loka á milli og með einu eða tveimur baðherbergjum. Athugið að fjölskylduherbergin eru ekki endilega í sömu byggingu og önnur herbergi.

Í öllum herbergjum eru baðherbergi með baðkari, sími, smábar, kælir, sjónvarp, svalir og teppi á gólfum.

AÐSTAÐA

Góður sundlaugargarður með tveimur sundlaugum og vatnsrennibrautasvæði. Garðurinn er því sannkölluð sundlaugaparadís með ærslasvæði fyrir börnin, fjörugu sundlaugasvæði fyrir alla fjölskylduna, minigolfi, blakvelli og rólegra sundlaugarsvæði fyrir þá sem vilja frið og ró.

Heilsulind er á hótelinu með innisundlaug, tyrknesku baði, líkamsrækt, spa og sauna. Á hótelinu er skartgripa-, leður- og teppaverslun, ásamt matvöruverslun, sjónvarpsherbergi og leiksvæði.

Handklæði eru til leigu fyrir gesti gegn hóflegu gjaldi.

OKKAR MAT

Mjög góður kostur í Marmaris - nýlegt, fallegt og skemmtilegt.

Sjá á korti
Sjá heimasíðu
BYGGING

Byggt árið (2006)
Fjöldi herbergja (434)
Stjörnur (5)
Gestamóttaka (Já)
Lyftur (true)

AÐSTAÐA

Barnalaug (Já)
Garður (Já)
Heilsulind (Já)
Leiksvæði fyrir börn (Já)
Líkamsrækt (Já)
Nuddpottur (Já)
Sauna (Já)
Sólbekkir (Já)
Billjarð (Já)
Veitingastaður (Já)
Bar (true)

VISTARVERUR

Hárþurrka (Já)
Loftkæling (Já)
Sími í herbergi (Já)
Sjónvarp í herbergi (Já)
Svalir/Verönd (Já)

ÞRIF OFT Í VIKU

Þrif (7 x í viku)
Handklæðaskipti (2 x í viku )
Skipt á rúmum (2 x í viku )

ANNAÐ

Fjarlægð frá strönd (Við strönd)

HEIMILISFANG


KORT