Grand Azur

UPPLIFUN

Eitt besta hótelið í Marmaris, klassískt, virðulegt og vandað. Grand Azur stendur alveg við ströndina og státar af glæsilegum garði með sérlega skemmtilegri sundlaug og vatnsrennibraut, ásamt þremur tennisvöllum sem eru upplýstir á kvöldin. Einnig er einstaklega góð innisundlaug og hægt að fara á milli inni- og útilaugar í vatnsrennibraut.

VISTARVERUR

Glæsilega útbúin herbergi með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi, smábar og svölum. Einstaklega falleg baðherbergi með sturtu og baðkeri.

Við reynum að taka tillit til óska um herbergi með sjávarsýn, en það kostar 16 Evrur á dag aukalega. Hringið eða sendið tölvupóst til að óska eftir sjávarsýn.

AÐSTAÐA

Heilsulind er á hótelinu og boðið upp á sauna, tyrkneskt bað og nudd. Sólstólar og handklæði við strönd og laug eru innifalin í verði en greiða þarf fyrir dýnur á sólbekki.

VEITINGASTAÐUR

Tveir veitingastaðir eru á hótelinu og er annar þeirra með glæsilegan "á la carte" seðil en auk þess er kaffihús með úrvali af kökum sem bakaðar eru á staðnum. Skemmtidagsskrá á kvöldin fyrir gesti.

OKKAR MAT

Drottning hótelanna í Marmaris. Sígilt, virðulegt og vandað.

Sjá á korti
Sjá heimasíðu
BYGGING

Byggt árið (1991)
Endurnýjað árið (2001)
Fjöldi herbergja (287)
Stjörnur (5)
Gestamóttaka (Já )

AÐSTAÐA

Aðgangur að tölvu (Já)
Aðgengi fyrir fatlaða (Já )
Barnalaug (Já )
Garður (Já )
Heilsulind (Já )
Innisundlaug (Já )
Líkamsrækt (Já)
Matvöruverslun (Í nágrenni)
Nuddpottur (Já )
Sólbekkir (Já)
Billjarð (Já)
Veitingastaður (Já )
Bar (true)

VISTARVERUR

Gervihnattasjónvarp (Já)
Hárþurrka (Já)
Loftkæling (Já)
Minibar (Já)
Sími í herbergi (Já)
Sjónvarp í herbergi (Já)
Svalir/Verönd (Já)
Öryggishólf (Já )

ÞRIF OFT Í VIKU

Þrif (7 x í viku )
Handklæðaskipti (7 x í viku )
Skipt á rúmum (7 x í viku )

ANNAÐ

Fjarlægð frá strönd (Við strönd)

HEIMILISFANG


KORT