Club Aida
UPPLIFUN
Club Aida er glænýtt íbúðahótel, opnaði í apríl 2008. Það er á góðum stað um 500 m frá ströndinni og stutt í verslanir, veitingahús, bari og næturklúbba. Á hótelinu sjálfu er róleg og notaleg stemmning og takmarkið að þér líði eins og heima hjá þér, en þó er stutt í fjörið.
VISTARVERUR
Hótelið er glænýtt og allar íbúðir eru með loftkælingu, öryggishólfi, fullbúinni stofu, svölum, gervihnattasjónvarpi og síma. Í eldhúskrók eru ísskápur, ketill, örbylgjuofn og rafmagnshellur.
Í boði eru íbúðir með einu eða tveimur hergbergjum. Herbergin eru tveggja manna og er sér baðherbergi inn af hverju svefnherbergi.
AÐSTAÐA
Á hótelinu er matvöruverslun, veitingastaður og pöbb, þar sem er reglulega dagskrá, t.d. lifandi tónlist og karaóke. Einnig er á hótelinu hárgreiðslustofa, aðgangur að tölvum og interneti gegn gjaldi og hægt er að komast á þráðlaust internet við barinn, þvottur og þurrhreinsun og aðgangur að lækni, gegn gjaldi.
Sundlaugarsvæðið er hreint frábært, hvort sem þú vilt taka því rólega og sóla þig, leika þér í rennibrautinni eða synda. Í heilsulindinni er líkamsræktaraðstaða, sauna, tyrkneskt baði, nudd og nuddpottur.
Í leikherberginu er hægt að finna sér fjölmargt við að vera; borðtennis, þythokkí, billjarð, pílukast auk tölvuleikja.