Içmeler
"Næsti bær"
Fyrir fáum árum var Içmeler lítið fiskimannaþorp í útjaðri Marmaris og aðeins hægt að komast þangað sjóleiðis. Í dag er Içmeler einn eftirsóttasti ferðamannastaður Tyrklands vegna legu sinnar við Marmaris-flóann, góðra stranda og notalegs andrúmslofts. Síðustu tíu ár hefur uppbygging ferðaþjónustu verið hröð en vel skipulögð þar sem hugsað var fyrir öllu sem hentar ferðamanni nútímans.
Veitingastaðir eru víða um bæinn og við ströndina og bjóða þeir bæði tyrkneskan og alþjóðlegan mat. Maturinn er góður, verðið hagstætt og þjónusta heimamanna er frábær.
Í Içmeler er fullt af góðum verslunum og hinn vikulegi útimarkaður er sívinsæll hjá ferðamönnum.
Ströndin við Içmeler er einstaklega falleg og hrein og þar bjóðast alls konar leiktæki fyrir alla aldurshópa. Í flæðarmálinu er lítil bryggja og þar leggja leigubátarnir að sem upplagt er að nota til að skjótast til og frá Marmaris.
Gamli bærinn í Içmeler lætur lítið yfir sér en hann er helsta aðdráttarafl ferðamanna sem sækja bæinn heim. Þar býr fólk eins og það hefur gert um aldir með hænur í görðunum og oft má sjá geitahirða að reka geitur sínar í hagann. Upp frá bænum eru skógi vaxnar hlíðar með litlum ferskvatnsám en af þeim er nafnið Içmeler dregið. Þetta hreina vatn þykir hafa góð áhrif á heilsu fólks og vera sérlega gott fyrir magaveika.
Içmeler er skammt frá Marmaris, eða
um tíu mínútna akstur. Smávagnar (dolmusar) halda uppi reglulegum ferðum á milli, leigubíla er hægt að fá allan sólarhringinn en skemmtilegast er að sigla á leigubátnum.
Frá Içmeler er líka stutt til Turunç sem er næsti strandbær og tiltölulega ósnortinn af ferðamannaiðnaðinum. Hægt er að komast þangað með smávagni, leigubíl eða leigubáti og upplagt að skreppa þangað í kvöldverð.