Siglingar

Hvergi betri

Í Göcek, sem er í 22 kílómetra fjarlægð frá Dalaman flugvelli ( Marmaris), er starfrækt íslensk seglskútuleiga Seaways ehf. Frá Göcek er hægt að sigla um ótal víkur , voga og eyjar, á einu af bestu siglingasvæðum Miðjarðarhafsins. Lycian Coast á suð-vesturströnd Tyrklands er frábært siglingasvæði fyrir bæði byrjendur sem og þaulreynda siglingakappa . Í þessari siglingaparadís, gætir nánast ekki flóðs og fjöru.

Hafið er spegilslétt, tært, hlýtt og frábært til lengri og skemmri siglinga. Nýjar seglskútur fyrirtækisins eru allar af gerðinni Jeanneau Sun Odyssey 45 og 49 feta stórar og eru mjög vel útbúnar. Seaways/Sjóleiðir , sérhæfir sig í seglskútuleigu með eða án skipstjóra og hafa það að markmiði að veita þér persónulega þjónustu og sjá til þess að sumarfríið verði þér ógleymanlegt. Uppskrift að innihaldsríku fríi er sigling í viku eða tvær og hengja síðan við dvöl í Marmaris eða Içmeler.

Skútur án skipstjóra

Við afhendum þér skútuna fullbúna til siglingar og þú skilar henni aftur eftir umsaminn leigutíma. Allar skúturnar eru mjög vel útbúnar siglinatækjum, sjókortum, GPS og leiðsögubókum með nákvæmum upplýsingum um allt siglingasvæðið. Til að leigja seglskútu án skipstjóra þarf leigutaki að hafa siglingareynslu á skútu af svipaðri stærð og/eða skipstjóraréttindi.

Skútur með skipstjóra

Fyrir þá sem njóta þess að sigla, en hafa ekki næga reynslu, þá er sigling með skipstjóra lausnin og um leið tækifæri til að eiga ógleymalegt sumarfrí.

Nánari upplýsingar hjá sölumönnum Úrvals Útsýnar í síma 585 4000. Einnig er hægt að hafa beint samband við Seaways, netfang: info@seaways-sailing.com .

Sjórinn er besti vinur mannsins á Marmaris svæðinu. Flóðs og fjöru gætir nánast alls ekki og allur flóinn er ein besta náttúrulega höfn heims. Hafið er spegilslétt, tært, hlýtt og frábært til lengri og skemmri siglinga.

www.seaways-sailing.com