Orlando
Óendanleg uppspretta skemmtunar!
Haustferðirnar komnar í sölu!
Ódýrustu sætin bókast fyrst!
Orlando er fjölbreytt borg og einn af vinsælustu áfangastöðum heims fyrir fjölskyldur. Orlando hefur upp á að bjóða þekktustu skemmtigarða heims, Disney World, Sea World, Universal Studios ásamt mörgum öðrum. Hægt væri að heimsækja nýjan skemmtigarð hvern dag vikunnar og þegar fólk hefur fengið fylli sína af þeim hefur Orlando upp á margt annað að bjóða og má segja að borgin bjóði upp á óendanlega möguleika til skemmtunar! Úrval af frábærum golfvöllum, söfnum og veitingastöðum.
óendanlegir verslunarmöguleikar
Þeir sem njóta þess að versla munu einnig geta svalað þorsta sínum í öllum þeim glæsilegu verslunarmiðstöðvum sem Orlando hefur uppá að bjóða, og ber þá helst að nefna Florida Mall, Premium Outlet og margar fleiri. Í boði verður fjölbreytt úrval gistinga á mjög hagkvæmu verði og staðsetning þeirra flestra gerir bílaleigubílinn óþarfan
Disney world
Disney World er frægasti skemmtigarður heims. Garðurinn skipist í nokkra garða eins og Magic Kingdom, Epcot Center, Hollywood Studios & Animal Park. Einnig eru þar tveir vatnsskemmtigarðar Typhoon Lagoon og Blizzard Beach. Magic Kingdom er þeirra einna þekktastur enda heimabær Mikka Mús, Andrésar Andar og fleirum vel þekktum teiknimyndapersónum.
Úrvals gisting í einkahúsi með einskassundlaug!
Alamo Vacation Homes eru vel útbúnar íbúðir og hús á Kissimmee svæðinu sem staðsett er u.þ.b 20 km frá Orlando. Um er að ræða íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og hús með 3 til 4 svefnherbergjum og einkasundlaug!