Svæði: Albufeira
Alfagar I er raðhúsagarður, byggður eins og lítið þorp umhverfis tvö sundlaugarsvæði. Einstaklega notalegt andrúmsloft og frábær aðstaða fyrir barnafólk. 1,5 km eru að verslunar- og veitingahúsasvæðinu í Sao Joao, sem er við neðri enda Laugarvegarins. Þar er iðandi mannlíf alla daga og öll kvöld. Alfagar I stendur á klettum ofan við Santa Eulia ströndina og liggur göngustígur frá hótelinu niður á ströndina. Á hótelinu eru sundlaugar, barnalaugar, barnaleiksvæði og lifandi músík flest kvöld.
Meira