Alfagar I
ALMENNT
Alfagar I er raðhúsagarður, byggður eins og lítið þorp umhverfis tvö sundlaugarsvæði. 1,5 km eru að verslunar- og veitingahúsasvæðinu í Sao Joao, sem er við neðri enda Laugarvegarins. 5 km eru í gamla bæinn í Albufeira. Þar er iðandi mannlíf alla daga og öll kvöld. Alfagar I stendur á klettum ofan við Santa Eulia ströndina og liggur göngustígur frá hótelinu niður á ströndina. Göngustígur er ofaná klettunum með fallegu útsýni yfir kletta, strönd og út yfir sjóinn. Gestamótttakan er í litlu húsi við innganginn í garðinn og er gestum ekið að íbúðum sínum. Nálægt snakkbarnum er stór sundlaug með barnalaug og einnig önnur barnalaug og leiksvæði fyrir krakkana. Þriðja sundlaugin er ofar í garðinum með útsýni yfir hafið. Matvöruverslunin selur glæný brauð alla daga, helstu matvörur og grænmeti, einnig dagblöð og tímarit. Veitingastaðurinn er ágætur með úrvali rétta og er hægt að sitja úti á veröndinni. Lifandi músík flest kvöld.
VISTARVERUR
Íbúðirnar eru í raðhúsalengum, sem eru tvær eða þrjár hæðir, en íbúðirnar eru ávallt á einni hæð. Tröppur eru upp að íbúðum á aðra eða þriðju hæð Íbúðirnar eru meðalstórar og snyrtilegar, ekki loftkældar en allar með svölum eða verönd. Eldhúsið er ágætlega búið helstu þægindum, kaffivél, brauðrist, eldavél og ofni. Íbúðir með einu svefnherbergi taka 3 fullorðna eða tvo fullorðna og tvö börn. Íbúðir með tveimur svefnherb. taka 5 fullorðna eða 4 fullorðna og tvö börn. Allar íbúðir eru þrifnar 4 sinnum í viku, skipt á rúmum 1 sinni í viku og skipt um handklæði 2 sinnum í viku.