CS Vila das Lagoas


UPPLIFUN
Lúxusíbúðir í Herdade dos Salgados hverfinu, skammt frá strönd og við Salgados golfvöllinn. Glæsilegar íbúðir með 2 svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum eru í raðhúsum, sem eru á 4 hæðum. Svalir eru meðfram allri íbúðinni. Í görðunum eru 7 sundlaugar, þar af ein barnalaug. Hótelið er hannað fyrir fagurkera, sem vilja framúrskarandi aðbúnað. Heilsulindin er með stórri innisundlaug, frábærri aðstöðu fyrir alls kyns heilsu- og dekurmeðferðir og tækjasalurinn er mjög stór og er hluti hans á tveimur hæðum. Salgados golfvöllurinn er í göngufæri og er völlurinn sérstakur fyrir að vera undir sjávarmáli.

 


VISTARVERUR

Rúmgóðar og glæsilegar lúxusíbúðir allar með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Stór LCD skjár,falleg nýtískuleg húsgögn og fullkomið eldhús. . Gengið er út á svalirnar úr stofunni og öðru svefnherberginu. Hægt er að renna viðarpanel eftir svalarhandriðinu og búa þannig til skugga á svölunum þar sem best hentar hverju sinni. Í íbúðunum er loftkæling, gervihnattasjónvarp, sími, og öryggishólf. Eldhúsið er vel búið með dökkum viðarinnréttingum, örbylgjuofni, bakarofni, keramik helluborði, uppþvottavél, þvottavél og þurrkara.


OKKAR MAT
Við getum svo sannarlega mælt með CS Hotel Vila Das Lagoas fyrir þá sem kjósa að dvelja í rólegu umhverfi, nálægt strönd og í einstaklega glæsilegum híbýlum. Mælum með bílaleigubíl á meðan á dvöl stendur.
AÐSTAÐA

Gestamóttakan er opin frá kl. 08:00 til kl. 20:00. Heilsulindin er með stórri innisundlaug, aðstöðu fyrir alls kyns heilsu- og dekurmeðferðir og tækjasalurinn er mjög stór og er hluti hans á tveimur hæðum. Salgados golfvöllurinn er í göngufæri og er völlurinn sérstakur fyrir að vera undir sjávarmáli. Í klúbbhúsinu við golfvöllinn er góður veitingastaður. Salgados ströndin er hvít, breið og 7 km löng. Ströndin er um 200 metra fyrir neðan hótelið, en taka þarf smá krók til að komast þangað. Í hótelgarðinum eru 7 sundlaugar, þarf af ein barnalaug, einnig veitingastaður og bar. Stæði í bílskýli fylgir hverri íbúð, en við mælum með að fólk hafi bíl til umráða.

FÆÐI
Hægt er að kaupa fæði á þessu hóteli.  Morgunverður kostar 7.000 kr á viku og hálf fæði kr. 31.500.  Börn 2-12 ára borga hálf gjald.
STAÐSETNING

Íbúðirnar eru á friðsælum stað við Herdade dos Salgados golfvöllinn og Salgados ströndina. Um 5 mín akstur er að einni fegurstu strönd Algarve héraðsins, São Rafael. Um 6 km eru til Albufeira. Umhhverfið er friðsælt og fallegt og fuglalíf fjölbreytt. Sjá má storka spóka sig á svæðinu.

KORT