Aparthotel Oceanus
UPPLIFUN
Gott 3 stjörnu íbúðarhótel í ferðamannabænum Olhos D'Agua um 5 km frá miðbæ Albufeira. Aðeins 500m eru niður á ströndina, þar sem hægt er að stunda allar helstu vatnaíþróttir. Hótelið er allt nýuppgert og hið smekklegaasta á allan máta. Í göngufæri við hótelið er úrval veitingastaða, bara og verslana. Leigubíla- og strætóstoppustöð er aðeins 50 m. frá Oceanus. Aparthotel Olhos D´Agua og Aparthotel Oceanus standa hlið við hlið og eru rekin af sama hótelstjóranum, þannig að hótelgestum er frjálst að nota aðstöðu beggja hótelanna.
VISTARVERUR
Rúmgóðar og smekklega innréttaðar íbúðir með einu svefnherbergi stofu og eldhúsi. Íbúðirnar eru allar nýlega endurnýjaðar og með lofkælingu, síma, gervihnattasjónvarpi, öryggishólfi og internettengingu. Í sjónvarpinu er DVD spilari. Eldhúsið er vel búið með ísskáp, bakarofni, brauðrist og hraðsuðukönnu. Svalir eða verönd eru á öllum íbúðum.
AÐSTAÐA
Snyrtileg gestamóttakan er opin allan sólarhringin. Hægt er að velja um tvo sundlaugargarða og þarf að ganga yfir bílastæði að þeim báðum. (50- 100 metrar). Við aðra laugina er pizzeria, bæði fyrir sundlaugargesti og einnig er hægt að panta þar pizzu og taka með uppá íbúð eða láta senda. Leiga á sólbekk kostar €1.50 á dag. Hinn garðurinn er við systurhótel Oceanus, Olhos d´Aqua. Þar eru sólbekkir án endurgjalds og lítill snakkbar við sundlaugina. Í báðum görðum er ein sundlaug og lítil barnalaug. Á þaki á Oceanus er sólbaðsaðstaða með gervigrasi. Lítill bar er opinn þar yfir sumarmánuðina. Af þakinu er fallegt útsýni yfir bæinn og út á sjó. Á hótelinu er einnig leiktækjasalur, innisundlaug og huggulegur bar sem opinn er á kvöldin sem af og til er með skemmtidagskrá. Hótelið stendur við umferðargötu og þeim megin í hótelinu getur verið ónæði frá umferðinni.
Hægt að panta íbúð með morgunverði. Kostnaður á mann í eina viku er kr. 6.650. Börn borga helming.
GOLF
Um 2 km eru á næsta golfvöll.