RIU Palace Algarve
UPPLIFUN
Riu Palace, er staðsett við bjargbrún með stórkostlegt útsýni yfir Atlantshafið. Hótelið er í fiskiþorpinu í Olhos de Agua, í 15 mín. göngufæri við Praia de Falesia ströndina sem er ein fallegasta ströndin í Algarve. Hótelið býður upp á öll helstu þægindi sem völ er á, glæsilegt hótel til að eiga ógleymanlegt og afslappandi frí.
VISTARVERUR
Herbergin eru teppalögð, fallega innréttuð og vel útbúin með síma, gervihnattasjónvarpi, loftkælingu, útvarpi, smábar og öryggishólfi. Svalir á öllum herbergjum. Fullbúin baðherbergi með sturtu og baðkari og hárþurrku.
AÐSTAÐA
Stór og glæsileg gestamóttaka með setustofu þar sem hægt er að komast á internet gegn gjaldi. Góður garður með sundlaug, sólbekkjum, sólhlífum barnalaug og innilaug. Einnig eru þar nuddpottur, gufubað og sauna margskonar dekurmeðferðir gegn greiðslu.
Á hótelinu er heilsulind og líkamsrækt, tennisvöllur, borðtennisborð, billjarðherbergi, leikherbergi fyrir börn.
AFÞREYING
Lifandi tónlist og skemmtiatriði nokkrum sinnum í viku.
Stutt er í 9 og 18 holu golfvelli.
VEITINGASTAÐIR
Hlaðborðsveitingastaður og tveir "a la carte" veitingastaðir sem eru opnir á háanna tíma. Þrír barir tveir inni á hótelinu og einn sundlaugarbar.