Portúgal

Skoðunarferðir

Skráning í skoðunarferðir fer fram í viðtalstíma og þjónustusíma fararstjóra og er greitt fyrir þær hjá fararstjóra.

Allar ferðir eru greiddar í Evrum. Skoðunarferðir eru með íslenskum fararstjóra ef þátttaka er næg.

Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn, og að sumar ferðir geta verið háðar lágmarksþátttöku.


Jeppasafarí

Í jeppasafarí gefst kjörið tækifæri til þess að kynnast sveitalífinu í Algarve. Jepparnir sækja farþega á hótelin og hver bíll tekur um sex til átta manns. Ekið er um vegi og vegleysur Algarve og komið er við í bruggverksmiðju á sveitabæ þar sem öllum er boðið að smakka á eldvatni sem bruggað er úr villiberjum. Í ferðinni er korkframleiðslan útskýrð og annar landbúnaður. Í hádeginu er boðið upp á portúgalskan mat, vín, gos og ávexti.

Ef tækifæri gefst til er stoppað við lón þar sem hægt er að skola af sér rykið. Þetta er ævintýraferð þar sem fléttast saman fróðleikur og spenna. Ökumennirnir eru leiðsögumenn í ferðinni.

Munið eftir sólhattinum, sólarvörninni, léttri peysu, sundfötum, handklæði, ævintýraþránni og rétt er að fara ekki í sitt fínasta púss því ferðaryk er töluvert.

Dagsferð.



Sjávardýragarðurinn Zoomarine

Heimsókn í sjávardýragarðinn Zoomarine er stórkostleg upplifun fyrir alla aldurshópa. Garðurinn er rétt fyrir utan bæinn Guia og tekur akstur þangað um 40 mínútur. Skemmtilegar sýningar eru í boði allan daginn og engum þarf að leiðast. Sæljónin halda uppi heilum leikþætti, höfrungarnir leika listir sínar eins og þeir einir geta, páfagaukarnir gera grín að sjálfum sér og öðrum. Fyrir utan dýralífið er í garðinum lítið tívolí, sundlaug og veitingastaður. Þessi ferð er fyrir stelpur og stráka, pabba og mömmur, afa og ömmur. Gleymið ekki sundfötum, handklæði, sólhatti og sólarvörn. Myndavélin er ómissandi til þess að festa á filmu atburði dagsins.

Dagsferð.



Slide & Splash

Slide & Splash er í bænum Lagoa og það tekur um 30 mínútur að aka þangað. Garðurinn hefur að geyma margar stórar og smáar rennibrautir sem ættu að henta öllum aldurshópum. Rennibrautir eins og Black Hole og Pistas Brandas ættu að koma adrenalíninnu af stað! Að sjálfsögðu er þarna að finna leiksvæði fyrir börnin þar sem þau geta buslað og rennt sér niður hina frægu drekatungu.



Markaðsferð til Loulé

Aldagömul hefð er fyrir því að bændurnir komi með uppskeru sína á markaðinn í Loulé alla laugardags morgna. Markaðurinn hefur haldið sínu gildi fyrir íbúa og ferðamenn streyma að til að líta varninginn augum.

Ávextir, grænmeti, fiskur, kjöt og lifandi fiðurfé er meðal þess sem bændurnir bjóða. Í Loulé er líka haldinn sígaunamarkaður með öllu sem tilheyrir; dúkum, teppum, handklæðum, skóm og svo mætti lengi telja. Á sígaunamarkaðnum er bæði fast verð og síðan má líka prútta af hjartans lyst. Frá Loulé er haldið til kirkju Sao Lourenco í Almancil en sú kirkja þykir með þeim fegurstu í Algarve og þótt víðar væri leitað.

Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn.


Vatnsrennibrautagarðurinn Aqualand

Rétt fyrir utan Albufeira er geysistór vatnsrennibrautagarður, Aqualand. Hann er einn sá stærsti í Algarve. Brautirnar eru margar og sumar hrikalegar en aðrar meinlausar. Í garðinum er öldusundlaug, barnalaug, aðstaða til sólbaða og veitingastaðir.

Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn.