Hotel La Siesta
UPPLIFUN
La Siesta er nýuppgert fjögurra stjörnu hótel staðsett fyrir miðju á Playa de las Americas ströndinni, aðeins 300 m frá sjónum. Þetta er U-laga, þriggja hæða bygging með garði og sundlaugum. Hótelið er vel staðsett á Playa de las Americas ströndinni, stutt frá Parque Santiago íbúðunum sem Sumarferðir bjóða einnig uppá. Mjög stutt er í alla þjónustu, veitingastaði og skemmtistaði.
VISTARVERUR
Á hótelinu eru 282 rúmgóð herbergi, öll með loftkælingu, síma, sjónvarpi, hárþurrku, öryggishólfi, minibar og svölum. Herbergin leyfa 2 fullorðna og 2 börn eða 3 fullorðna. Hægt er að velja um venjuleg herbergi eða sk. "superior herbergi" en þau herbergi eru með garðsýni auk þess sem baðherbergin eru betur búin, og fylgja m.a. baðsloppar. Við komu er gestum boðið upp vatn og ávexti.
AÐSTAÐA
Hótelið býður upp á margskonar þjónustu til að gera fríið þitt sem skemmtilegast. Það eru sundlaugar bæði fyrir börn og fullorðna og frábær sólbaðsaðstaða. Á hótelinu er þægileg og vel útbúin heilsulind þar sem er m.a. að finna nuddpott, gufubað og heilsurækt. Þar er boðið uppá alhliða nudd og ýmsar meðferðir sem stuðla að vellíðan og betra líkamsformi , andlitsböð, hand- og fótsnyrtingu og margt annað til að dekra við sjálfan sig og láta sér líða vel. Internet aðgangur er til staðar á hótelinu, þvottaaðstaða og hársnyrtistofa.
AFÞREYING
Hótelið býður upp á daglega skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa, lifandi tónlist, dansatriði og diskótek svo dæmi séu tekin. Á svæðinu er einnig tennisvöllur, blakvöllur, billiard og borðtennis, og leikvöllur fyrir börn. Vikulega er síðan haldin grillveisla utandyra með lifandi tónlist og fjölbreyttri skemmtidagskrá.
VEITINGASTAÐIR
Hótelið býður upp á fjölbreytt hlaðborð frá morgni til kvölds á veitingastað hótelsins El Drago sem býður upp á alþjóðlegan mat. Einnig er snakk bar á svæðinu þar sem hægt er að fá sér léttar veitingar um daginn.