Parque Santiago Apartments


UPPLIFUN

Þetta íbúðahótel er örugglega eitt eftirsóttasta hótel á Tenerife. Hótelið er byggt í skemmtilegum spönskum stíl og staðsetningin á Playa de las Americas stöndinni er frábær. Nýverið var opnað nýtt leiksvæði fyrir börn í garðinum sem á vægast sagt eftir að kæta yngri kynslóðina. Þar er að finna heilar 7 vatnsrennibrautir ásamt ótal nýjum leiktækjum sem gerir þetta hótel að einstaklega góðum valkosti fyrir fjölskyldufólk.


VISTARVERUR

Íbúðirnar eru bjartar og mjög vel við haldnar. Gestir geta valið um stúdíóíbúð eða íbúð með einu, tveimur eða þremur (takmark upplag) svefnherbergjum og eru ýmist á einni eða tveimur hæðum. Hver íbúð er með eldhús, stóra stofu með sófa, gervihnattasjónvarp, síma, öryggishólf og svalir. Íbúðirnar eru þrifnar 6 sinnum í viku og skipt er um rúmföt og handklæði tvisvar í viku. Athugið að ekki eru lyftur í öllum byggingum.


AÐSTAÐA

Hótelgarðurinn er örugglega einn sá stærsti sem finnst á þessu svæði og er bæði fallegur og mjög vel búinn. Sundlaugaraðstaðan er óviðjafnanleg, í hjarta garðsins er 10.000 fermetra sundlaug auk minni lauga og mjög stórri sólbaðsaðstöðu. Gestir hótelsins hafa aðgang að tveimur slíkum görðum, því hótelbyggingarnar eru tvær, Parque Santiago 3 og Parque Santiago 4. Barnalaug, sólbekkir án endurgjalds, 24 tíma gestamóttaka, glænýr barnaleikvöllur og aðgangur að interneti eru bara hluti að því sem hótelið býður upp á. Einnig eru tugir verslana staðsettar undir hótelinu. Í janúar 2008 opnaði ný og glæsileg líkamræktarstöð


VEITINGASTAÐIR

Á hótelinu eru 8 veitingastaðir og þar á meðal spánskur, ítalskur, kínverskur og alþjóðlegur veitingastaður. Einnig eru 8 barir og kaffihús sem ýmist bjóða upp á léttan mat, framandi kokteila eða lifandi tónlist og skemmtiatriði.


FYRIR BÖRNIN

Nýverið var opnað nýtt leiksvæði fyrir börn í garðinum sem á vægast sagt eftir að kæta yngri kynslóðina. Þar er að finna heilar 7 vatnsrennibrautir ásamt ótal nýjum leiktækjum sem gerir þetta hótel að einstaklega góðum valkosti fyrir fjölskyldufólk.


STAÐSETNING

Hótelið er frábærlega staðsett og er innan við 80 metra frá glæsilegri strönd. Skemmti- og veitingastaðir í öllum regnbogans litum og alþjóðlegar verslanir með ótúlega fjölbreytt vöruúrval gera hótelið að eftirsóttum stað fyrir þá sem vilja vera í rólegheitum við strönd en jafnframt í göngufæri við iðandi mannlíf.

Sjá á korti
Sjá heimasíðu
BYGGING

Fjöldi íbúða (728)
Fjöldi hæða (4)
Gestamóttaka (Já)
Lyklar (3)

AÐSTAÐA

Barnalaug (Já)
Veitingastaður (Já)
Garður (Já)
Billjarð (Já)
Leiksvæði fyrir börn (Já)
Sólbekkir (Já)
Hraðbanki á hóteli (Já)
Aðgangur að tölvu (Já)
Bar (true)

VISTARVERUR

Öryggishólf (Já, leiga)
Ísskápur (Já)
Kaffivél (Já)
Sími í íbúð (Já)
Sjónvarp í íbúð (Já)
Svalir/Verönd (Já)
Loftkæling (Nei)

ÞRIF OFT Í VIKU

Skipt á rúmum (2x í viku)
Handklæðaskipti (2x í viku)
Þrif (7 x í viku )

ANNAÐ

Barnavænt (Já)
Fjarlægð frá strönd (Við ströndina)

HEIMILISFANG


KORT