Parque de las Americas

Upplifun

Parque de las Americas er mjög vel staðsett íbúðahótel á jaðri Costa Adeje hlutans og steinsnar frá iðandi mannlífi Playa de las Americas. Stutt er í alla þjónustu og aðeins 100 metrar á Bobo ströndina. Íbúðirnar voru allar algjörlega endurnýjaðar árið 2005. Skemmtilegar íbúðir á besta stað. Íbúðahótelið er byggt í kringum sundlaug og á stöllum. Því getur verið um að ræða tröppugang í efstu íbúðirnar.

Vistarverur

Íbúðirnar eru vistlegar, með einu eða tveimur svefnherbergjum, setustofu með eldhúskrók og eldhúsborði. Ljósar innréttingar og ágætt baðherbergi. Íbúðirnar eru rúmgóðar, ýmist á einni eða tveimur hæðum með sjónvarpi (gegn gjaldi) og öryggishólfi. Hver íbúð er með svalir/verönd. Hámarksfjöldi í íbúð er 2 fullorðnir og tvö börn.

Aðstaða

Á hótelinu er sundlaug þar sem grynnri endinn er fyrir börnin. Fín sólbaðsaðstaða með sólbekkjum og sólhlífum án endurgjalds ásamt sundlaugarbar fyrir þyrsta. Þvottaaðstaða er í kjallara hótelsins og aðgangur að interneti gegn gjaldi er í andyri hótelsins.

Vinsamlegast athugið að sundlaugin á hótelinu verður lokuð 14.-16. september.

Afþreying

Undir sundlaugargarðinum er líkamsrækt/tækjasalur þar sem gestir íbúðahótelsins geta keypt sér staka tíma. Stór flatskjár er á veitingastað Parque de las Americas þar sem jafnan er sýnt frá helstu íþróttaviðburðum.

Veitingastaðir

Veitingastaður Parque de las Americas snýr út að götunni og er með fjölbreyttan matseðil þar sem hægt er að fá morgun-, hádegis- og kvöldmat. Þar eru einnig kvöldskemmtanir og dans alla daga vikunnar.

Staðsetning

Parque de las Americas eru skemmtilegar íbúðir á besta stað á Costa Adeje en rétt við hjarta Playa de Las Americas. Aðeins 100 m á Bobo ströndina og í fallegar gönguleiðir meðfram strandlengjunni. Stutt í veitingastaði og alla þjónustu en þó á rólegum stað. Fyrir þá sem vilja komast í golf er Golf las Americas völlurinn aðeins 2 km frá.

Sjá á korti
Sjá heimasíðu
BYGGING

Byggt árið (1976)
Gestamóttaka (Já)
Fjöldi íbúða (60)
Lyklar (2)
Endurnýjað árið (2005)

AÐSTAÐA

Billjarð (Já)
Barnalaug (Nei)
Sólbekkir (Já)
Garður (Já)
Þvottaaðstaða (Já, gegn gjaldi)
Internet aðgangur (Já, gegn gjaldi)
Heilsulind (Já)

VISTARVERUR

Loftkæling (Nei)
Öryggishólf (Já)
Kaffivél (Já)
Ísskápur (Já)
Sjónvarp í herbergi (Já, gegn gjaldi)
Gervihnattasjónvarp (Já)

ÞRIF OFT Í VIKU

Þrif (6 x í viku)
Handklæðaskipti (3 x í viku)
Skipt á rúmum (2x í viku)

ANNAÐ

Fjarlægð frá strönd (100)
Næsti golfvöllur (2 km)

HEIMILISFANG


KORT