Hotel Gala


UPPLIFUN

Gott 4 stjörnu hótel, vel staðsett á Playa de las Americas svæðinu og aðeins í 5 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni. Hótelið er rómað fyrir góðan mat og stutt er í verslanir og fjölda skemmtistaða í næsta nágrenni.


VISTARVERUR

Á hótelinu eru 308 herbergi, þar af 10 svítur. Herbergin eru snyrtileg með loftkælingu og fullbúnu baðherbergi, sjónvarpi og minibar. Hægt er að tryggja sér sjávarsýn eða útsýni yfir sundlaugargarðinn gegn gjaldi.


AÐSTAÐA

Mjög góð sólbaðsaðstaða er við hótelið, m.a. 2 stórar sundlaugar og ein barnalaug. Önnur sundlaugin og barnalaugin eru upphitaðar, og er barnalaugin einstaklega skemmtileg. Við sundlaugina er mjög gott leiksvæði fyrir yngstu krakkana, þar sem eitthvað skemmtilegt er i boði á daginn fyrir þau minnstu.


AFÞREYING

Góð internetaðstaða er ókeypis á hótelinu og einnig eru þar leiktæki fyrir börn (Play station) og spilaborð. Auk þess er öflug skemmtidagskrá í boði bæði á daginn og kvöldin svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á Hotel Gala. Mikil þjónusta er á hótelinu og þar er m.a. snyrti- og hárgreiðslustofa, nuddstofa, sauna og góð líkamsræktaraðstaða í kjallara hótelsins sem er án endurgjalds fyrir gesti Gala.


VEITINGASTAÐIR

Aðalveitingastaður hótelsins er hlaðborðsstaður við sundlaugargarðinn, þar sem ýmist er hægt að sitja inni eða úti. Hótelið er þekkt/rómað fyrir góðan mat og í hádeginu er boðið upp á eitthvað spennandi á grillinu úti við sundlaugina. Kokteil- og píanóbar, er þar sem skemmtidagskrá hótelsins er haldin.


FYRIR BÖRNIN

Krakkaklúbbur fyrir yngstu kynslóðina og skemmtilegt leiksvæði fyrir litla krakka við sundlaugina. Á kvöldin er boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá fyrir börn sem fullorðna.


STAÐSETNING

Hótel Gala er vel staðsett á Playa de las Americas ströndinni, í Troya hverfinu. Aðeins 100 m á ströndina (sér stígur frá hótelinu) fjöldi skemmtistaða, bara, kaffihúsa og verslana í næsta nágrenni. Fyrir þá sem vilja komast í golf er Golf las Americas golfvöllurinn aðeins 500 metra fjarlægð.


Sjá á korti
Sjá heimasíðu
BYGGING

Stjörnur (4)
Gestamóttaka (Já)
Lyftur (true)
Fjöldi herbergja (308)

AÐSTAÐA

Veitingastaður (Já)
Billjarð (Já)
Barnalaug (Já)
Sólbekkir (Já)
Skemmtidagskrá (Já)
Barnadagskrá (Já)
Leiksvæði fyrir börn (Já)
Garður (Já)
Internet aðgangur (Já)
Sundlaug (Já)
Bar (true)
Sauna (Já)
Leiktækjasalur (Já)
Handklæði við sundlaug (Já gegn gjaldi )
Heilsulind (Já)

VISTARVERUR

Loftkæling (Já )
Öryggishólf (Já)
Sjónvarp í herbergi (Já)
Sími í herbergi (Já)
Hárþurrka (Já)
Minibar (Já)
Gervihnattasjónvarp (Já)
Svalir/Verönd (Já)

ÞRIF OFT Í VIKU

Þrif (7 x)
Handklæðaskipti (7 x)

ANNAÐ

Fjarlægð frá strönd (5 mín)
Barnavænt (Já)

HEIMILISFANG


KORT