Gran Hotel Bahía del Duque


UPPLIFUN

Stórglæsilegt 5 stjörnu lúxushótel og eitt af fáum hótelum sem komist hefur í hina frægu bók Leading Hotels of the World. Hótelið stendur svo sannarlega undir þeim væntingum og er eitt glæsilegasta hótel í Evrópu.

Hótelið er byggt eins og lítið spænskt þorp, en 480 herbergi eru í 20 byggingum sem standa í fallegum garði. Miðpunkturinn eru torgið og klukkuturninn. Á kvöldin geta gestir setið og notið skemmtidagskrár, sem fer þar fram.


VISTARVERUR

Herbergin eru vel búin öllum helstu þægindum sem gera má ráð fyrir á 5 stjörnu hóteli, t.d. gervihnattasjónvarpi, internettengingu, skrifborði, smábar, öryggishólfi, loftkælingu, hárþurrku og herbergisþjónustu allan sólarhringinn.


AÐSTAÐA

Sundlaugargarðurinn er ævintýralegur, þar er hægt að leggjast á þykkar dýnur á góðum bekkjum og þeir sem vilja geta valið bekki sem tjaldað er yfir - og minna helst á eitthvað úr 1001 nótt. Sundlaugarnar eru sex, 2 þeirra fylltar af sjó, auk tveggja barnalauga. Starfsfólk hótelsins er klætt í kanaríska þjóðbúninga og þjónustan er öll fyrsta flokks.

Á hótelinu eru heilsulind, líkamsrækt, 3 tennisvellir, skvassvöllur, snyrtistofa og kaffihús.


VEITINGASTAÐIR

Veitingastaðir eru alls 8, þar af ítalskur, franskur, mexíkóskur og síðast en ekki síst nýjasti veitingastaðurinn, Las Aquas, en hann er af mörgum talinn sá besti á suður-hluta Tenerife. Staðurinn er tilvalinn ef menn vilja halda upp á sérstakt tilefni eða slá í gegn hjá sinni heittelskuðu.Eigandi staðarins, Salvador Gallego, er mjög þekktur í heimalandi sínu. Beach Club, er afar vinsæll hádegisverðarstaður. Þar geta menn setið og notið magnaðs útsýnis og fjölbreyttra sjávarrétta. Tilvalinn staður til að verja 3–4 klukkustundum yfir heitasta tímann og láta stjana við sig í mat og drykk. Matseðilinn er mjög fjölbreyttur. Þar má finna þjóðarrétti eyjanna auk alþjóðlegra úrvalsrétta. Vínlistinn er sérlega glæsilegur. Verð er örugglega í hærri kantinum enda matur og þjónusta eins og best verður á kosið.Barir eru níu, inni og úti.


FYRIR BÖRNIN

Á hótelinu er rekinn barnaklúbbur og í sundlaugargarðinum eru tvær barnalaugar.


STAÐSETNING

Hótelið er á góðum stað við El Duque ströndina.


BÓKUNARMÖGULEIKAR

Innifalið í verðinu er morgunverður og er hægt að bæta við kvöldverði þannig að fólk hafi hálft fæði. Einnig er hægt að festa sér sjávarsýn gegn gjaldi.


SJ 07.08



Sjá á korti
Sjá heimasíðu
BYGGING

Stjörnur (5)
Gestamóttaka (Já)
Fjöldi hæða (7)
Lyftur (true)

AÐSTAÐA

Veitingastaður (Já, 11)
Billjarð (Já)
Barnalaug (Já)
Sólbekkir (Já)
Barnadagskrá (Já)
Garður (Já)
Líkamsrækt (Já)
Internet aðgangur (Já)
Sauna (Já)
Aðgangur að tölvu (Já)
Handklæði við sundlaug (Já)

VISTARVERUR

Loftkæling (Já)
Öryggishólf (Já)
Ísskápur (Minibarinn)
Sjónvarp í herbergi (Já)
Sími í herbergi (Já)
Hárþurrka (Já)
Minibar (Já)
Gervihnattasjónvarp (Já)
Svalir/Verönd (Já)

ÞRIF OFT Í VIKU

Þrif (Daglega)
Handklæðaskipti (Daglega)
Skipt á rúmum (Daglega)

ANNAÐ

Fjarlægð frá strönd (Við strönd)

HEIMILISFANG


KORT