Parque del Sol
UPPLIFUN
Frábær kostur fyrir fjölskylduna þar sem öll aðstaða og þjónusta er til fyrirmyndar. Allt svæðið er sérlega notalegt og hlýlegt og kapp lagt á að koma sem best til móts við þarfir og kröfur hótelgesta. Ekta fjölskyldustaður þar sem íbúðirnar eru byggðar umhverfis glæsilegt sundlaugasvæði. Hótelið er vel staðsett í einungis 300 metra fjarlægð frá Fanabé ströndinni og steinsnar frá hinni glæsilegu verslunarmiðstöð Plaza del Duque. Ein besta íbúðagistingin á Tenerife!
VISTARVERUR
Mjög góðar og bjartar íbúðir í suðrænum stíl. Íbúðunum er mjög vel við haldið, innréttingar eru ljósleitar og smekklegar. Stofan er búin ljósum húsgögnum með eldhúskrók þar sem er örbylgju- og bakarofn ásamt öðrum heimilstækjum. Viftur eru í stofu og svefnherbergjum. Fullbúið baðherbergi, öryggishólf, sími og sjónvarp. Athugið að ekki eru lyftur fyrir allar íbúðir.
AÐSTAÐA
Garðurinn er einkar fallegur, vaxinn hitabeltisgróðri og í honum er skemmtilega löguð sundlaug og barnalaug ásamt nuddpotti. Fín sólbaðsaðstaða með sólbekkjum og sólhlífum án endurgjalds. Á hótelinu er lítil matvörubúð, góður líkamsræktarsalur (ókeypis fyrir gesti), sauna og þvottaaðstaða.
AFÞREYING
Á Parque del Sol er minigolf, billjarð, borðtennis, og aðgangur að interneti á herbergjum í gegnum sjónvarpið.
VEITINGASTAÐIR
Aðal veitingastaður hótelsins er hlaðborðsstaður með morgun-, og kvöldmat. Á sundlaugarbar hótelsins sem er við miðja laugina er hægt að fá létta rétti yfir daginn og á kvöldin er hægt að sitja bæði úti og inni á bar hótelsins og njóta dans og leiksýninga.
FYRIR BÖRNIN
Frábær leikaðstaða er fyrir krakka á öllum aldri við hliðina á líkamsræktinni og á kvöldin er boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá fyrir börn sem fullorðna.
STAÐSETNING
Parque del Sol er frábærlega staðsett í hjarta Costa Adeje hlutanum. Aðeins 300 m á Fanabé og Duque ströndina þar sem fjöldi veitingastaða, bara, kaffihúsa og verslana er í kring. Playa de las Americas er í 3,5 km fjarlægð frá Costa Adeja ströndinni. Fyrir þá sem vilja komast í golf er Costa Adeje völlurinn aðeins 2,5 km í burtu.