Hotel Villa Cortes


UPPLIFUN

Á Villa Cortes er allt í fyrsta flokki. Allt hótelið er í mexíkóskum stíl; herbergi og svítur eru glæsilega innréttuð og fögur listaverk prýða hótelið. Hótel fyrir þá kröfuhörðustu sem vilja slökun og rólegheit ásamt því að njóta mestu þæginda og þjónustu sem völ er á. Við mælum með Villa Cortes fyrir þá sem vilja virkilega láta dekra við sig.


VISTARVERUR

Á hótelinu eru 151 vel útbúin herbergi innréttuð í mexíkóskum stíl, þar sem hvert og eitt er einstakt. Herbergin eru mjög rúm og hlaðin þægindum; glæsilegar mublur í hefðarstíl, stór tvöföld rúm, sófi, borð, skrifborð og skápur. Fullbúið lúxusbaðherbergi með baði, sturtu og hárþurrku. Sloppur og inniskór á herbergjum. Herbergin eru með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi, mini-bar, internet tengingu og öryggishólfi. Svalir eða verönd fylgir hverju herbergi.


AÐSTAÐA

Mjög stór sundlaug með fossi og sér barnalaug er í glæsilegum garði hótelsins sem snýr út að stórbrotnu hafinu. Trébekkir með dýnum, handklæðum og sólhlífum eru til handa gestum. Fallegar setustofur eru á hótelinu með rólegu andrúmslofti þar sem stundum er leikin píanótónlist. Hótelið hefur sérstakt klúbbhús fyrir gesti og að sjálfsögðu er gestamóttakan opin allan sólarhringinn.


AFÞREYING

Á Villa Cortés er bæði tennisvöllur og heilsulind með tyrknesku baði, þar sem úrval dekurmeðferða er í boði ásamt líkamsrækt fyrir þá sem vilja halda sér í formi og hárgreiðslustofu. Hótelinu tilheyrir lítil strönd þar sem eitt af veitingahúsum hótelsins er.


VEITINGASTAÐIR

Veitingastaðir hótelsins bjóða frábært úrval lystisemda, allt frá hinu risastóra morgun- og kvöldverðarhlaðborði á Veracruz að mexíkóskum sérréttum á Pancho Villa, sem er einn besti mexíkóski veitingastaðurinn á Tenerife. Á hótelinu er einnig að finna ekta Bavarískt veitingahús, sælkerastaðinn Tiziano og Beach Club niður við ströndina.


FYRIR BÖRNIN

Á hótelinu er leiksvæði þar sem er barnagæsla fyrir börn þegar mikill fjöldi barna er á hótelinu. Fyrir framan hótelið, við göngustíg við sjóinn er fjöldi leiksvæða fyrir börn.


STAÐSETNING

Hótelið er frábærlega staðsett við litla strönd þar sem fallegt útsýni er yfir á La Gomera eyjuna, en jafnframt í göngufæri við iðandi mannlíf. Fjöldi veitinga-og skemmtistaða í öllum regnbogans litum og alþjóðlegar verslanir með merkjavöru eru allt um kring í hjarta Playa de las Americas.

Sjá á korti
Sjá heimasíðu
BYGGING

Stjörnur (5)
Gestamóttaka (Já )
Fjöldi hæða (7)
Lyftur (true)
Fjöldi herbergja (151)

AÐSTAÐA

Veitingastaður (3)
Billjarð (Já)
Barnalaug (Já)
Sólbekkir (Já)
Garður (Já)
Internet aðgangur (Já)
Sundlaug (Já)
Tennisvöllur (Já)
Bar (true)
Handklæði við sundlaug (Já)
Heilsulind (Já)

VISTARVERUR

Loftkæling (Já)
Öryggishólf (Já)
Sjónvarp í herbergi (Já)
Sími í herbergi (Já)
Hárþurrka (Já)
Minibar (Já)

ÞRIF OFT Í VIKU

Þrif (7 x í viku )
Handklæðaskipti (7 x í viku )
Skipt á rúmum (7 x í viku )

ANNAÐ

Fjarlægð frá strönd (Við strönd)

HEIMILISFANG


KORT