Costa Adeje Gran Hotel
UPPLIFUN
Fallegt hótel með glæsilegu útsýni yfir Duque og Fanabé hverfin og samnefndar strendur. Hótelið er mjög fjölskylduvænt og vel staðsett í afslappandi umhverfi á Costa Adeje svæðinu, aðeins í 300 m göngufjarlægð frá ströndinni og hinu glæsilega verslunartorgi Plaza del Duque.
VISTARVERUR
Hótelið var opnað í lok ársins 2001 og er á fimm hæðum. Á hótelinu eru 458 herbergi, þar af 19 svítur af mismunandi gerð. Herbergin eru rúmgóð (40m2) í klassískum stíl þar sem eru tvö stök rúm eða hjónarúm með litlum svefnsófa, borði og skrifborði. Herbergin eru með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi, síma, tónlistarútvarpi og minibar. Fullbúið tvískipt baðherbergi með hárþurrku og baðkari með sturtu.
AÐSTAÐA
Mjög góð sólbaðsaðstaða er við hótelið, stór sundlaugargarður með tveimur góðum sundlaugum þar sem sólbekkir, handklæði og sólhlífar eru fyrir gesti. önnur laugin ásamt barnalauginni er upphituð en hin er með glerbotni sem sést frá andyri hótelsins. Á þaki hótelsins er glæsileg sólbaðsaðstaða með sundlaug og útsýni yfir Atlantshafið og nærliggjandi fjöll.
AFÞREYING
Á Costa Adeje er aðstaða til afþreyingar til fyrirmyndar; Tennis, fótbolti, blak, veggjatennis, minigolf, borðtennis og billjarð ásamt sjónvarpssal, internet herbergi, spilaborðum, lesaðstöðu og leikjaherbergi. Ókeypis þráðlaust internet fyrir fartölvur er í tilkomumiklu andyri hótelsins.
Fyrir þá sem vilja halda sér í formi er heilsulind (gegn gjaldi) með nuddpotti, tyrknesku baði, gufubaði og tækjasal (gegn gjaldi). Nudd og snyrtistofa með ýmsar meðferðir ásamt hárgreiðslustofu. Fjölbreytt skemmtidagskrá er á hótelinu, bæði fyrir börn og fullorðna á daginn og á kvöldin.
VEITINGASTAÐIR
Aðalveitingastaðir hótelsins eru hlaðborðsstaður við sundlaugargarðinn ásamt öðrum minni hlaðborðsstað, fyrir gesti sem eru í svítum, þeir ásamt spænsk-ítölskum veitingastað eru opnir á kvöldin. Í sundlaugargarðinum eru síðan snakkbar með létta rétti og djúsbar sem eru opnir á daginn ásamt þjóðlegum spænskum stað.
FYRIR BÖRNIN
Lítið leiksvæði með tréhúsi er þar sem krakkaklúbbur og barnagæsla hótelsins er. Á hótelinu er einvala lið ungs fólks sem sér um skemmtidagskrá hótelsins, bæði fyrir börn á daginn sem og á kvöldin, með leikjum og mini diskói.
STAÐSETNING
Costa Adeje Gran Hotel er vel staðsett hótel í afslappandi umhverfi á Costa Adeje svæðinu. Aðeins í 300 m göngufjarlægð frá Duque ströndinni þar sem er fjöldi veitingahúsa og hinu glæsilega verslunartorgi Plaza del Duque. Í næsta nágrenni eru verslanir og hinn vinsæli útimarkaður á Costa Adeje, þar sem allt iðar af mannlífi. Fyrir þá sem vilja spila golf þá er 27 holu golfvöllur, Costa Adeje völlurinn, einungis í 3 km fjarlægð.
ÞG 10.07