Hotel Fanabe Costa Sur

UPPLIFUN

Hótel Fanabe er gott 4 stjörnu hótel á Costa Adeje strandhlutanum, vel staðsett, þar sem útimarkaðurinn á svæðinu er við hliðina á hótelinu og stutt er í verslanir þ.m.t glæsilega verslunartorgið Plaza del Duque. 250-350 m eru niður á Fanabé og Duque strendurnar, þar sem er fjöldi veitingasstaða. Hótelið kemur fólki skemmtilega á óvart, fjölbreytt sameiginleg aðstaða, góð þjónusta og þægilegt viðmót gerir dvöl á Hótel Fanabe vel þess virði að eyða sumarleyfinu sínu.


VISTARVERUR

Á hótelinu eru 413 herbergi á 4 hæðum, sem öll eru með gervihnattasjónvarpi, síma, öryggishólfi og minibar. Öll herbergin eru ágætlega rúmgóð (ca 25-30 fm) og snyrtileg með loftkælingu og svölum sem ýmist snúa inn í sundlaugargarðinn eða eru með útsýni til sjávar eða upp til fjalla. Í herbergjunum eru annaðhvort hjónarúm eða tvö stök rúm, lítill sófi, skrifborð og stólar. Baðherbergin eru stór og fullbúin með hárþurrku og baðkari, þar sem í er sturta.


AÐSTAÐA

Sólbaðsaðstaðan er góð við tvískipta sundlaugina ásamt barnalaug, en báðar eru upphitaðar á veturna. Við laugina eru sólbekkir og sólhlífar án endurgjalds. Tennisvöllur, boltavöllur, mini-golf og leiksvæði fyrir krakka er einnig við sundlaugarsvæðið. Á þaki hótelsins er fín aðstaða til að njóta sólarinnar og útsýnis, ásamt tveimur litlum kerlaugum. Gjafavöruverslun, blaða-og tímaritabúð og hárgreiðslustofa eru við andyri hótelsins ásamt gestamóttökunni sem að sjálfsögðu er opin allan sólarhringinn.


AFÞREYING

Fyrir þá sem vilja halda sér í formi er fjölmargt í boði því á hótelinu er tennisvöllur, boltavöllur, billjard, minigolf og diskótek. Einnig geta gestir farið í líkamsrækt/tækjasal (gegn gjaldi), og eða skellt sér í nudd og gufubað á heilsulind hótelsins.


ALLT INNIFALIÐ

Þeim sem kaupa "allt innifalið" pakkann fá morgunverð, hádegisverð og kvöldverð. Þeir fá einnig snarl á barnum frá kl. 10 á morgnana til 12:30. Þá er einnig innifalið kökur og kaffi frá kl. 15:00 til 18:00 og samlokur frá því að kvöldverði líkur til kl. 23:00. Þá eru öll drykkjarföng innifalin, bæði áfengir innlendir drykkir og óáfengir. "Allt innifalið" þjónustan er í boði alla daga frá kl. 07:30 til kl 23.00


VEITINGASTAÐIR

Aðalveitingastaður hótelsins er hlaðborðsstaður við sundlaugina þar sem ýmist er hægt að borða úti eða inni, morgun-hádegis og eða kvöldmat. Hótel Fanabé er þekkt fyrir góðan mat og fjölbreytni í matargerð. Grill og snakkbar er við sundlaugina og útikaffihús er við aðalinnganginn og gestamóttökuna, þar sem danstónlist og skemmtidagskrá er á kvöldin.


FYRIR BÖRNIN

Krakkaklúbbur og skemmtidagskrá er fyrir yngstu kynslóðina á daginn og á kvöldin er boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá fyrir börn sem fullorðna.

STAÐSETNING

Hótelið er mjög vel staðsett á Costa Adeje hlutanum, fjarlægð á strönd er 250 metrar og stutt er í alla þjónustu, verslanir og fjölbreytta veitingastaði. Vatnaskemmtigarður er í 1 km fjarlægð og golfvellir í 3 km frá hótelinu. 15 km frá flugvellinum og 80 km frá höfuðborginni Santa Cruz.

ÞG 10.07


Sjá á korti
Sjá heimasíðu
BYGGING

Gestamóttaka (Já)
Lyftur (true)
Fjöldi herbergja (413)
Endurnýjað árið (2004)
Hentugt fyrir fatlaða (Já)

AÐSTAÐA

Veitingastaður (Já)
Billjarð (Já)
Barnalaug (Já)
Skemmtidagskrá (Já)
Barnadagskrá (Já)
Leiksvæði fyrir börn (Já)
Garður (Já)
Líkamsrækt (Já)
Internet aðgangur (Já)
Hraðbanki á hóteli (Já)
Mini golf (Já)
Tennisvöllur (Já)
Bar (true)
Sauna (Já)
Aðgangur að tölvu (Já)
Heilsulind (Já)
Innisundlaug (Já)

VISTARVERUR

Loftkæling (Já)
Öryggishólf (Já)
Sjónvarp í herbergi (Já)
Sími í herbergi (Já)
Hárþurrka (Já)
Minibar (Já)
Gervihnattasjónvarp (Já)
Svalir/Verönd (Já)

ANNAÐ

Fjarlægð frá strönd (250 m)
Næsti golfvöllur (2 km)
Barnavænt (Já)

HEIMILISFANG


KORT