Tropical Playa

ALMENNT

Gott 3ja stjörnu íbúðarhótel á Las Americas ströndinni. Hótelið er staðsett í rólegum hluta Troya hverfisins og er stutt í búðir og aðeins um 450 m á ströndina. Góður sundlaugargarður með sérstakri barnalaug og eru laugarnar upphitaðar yfir vetrarmánuðina. Góð sólbaðsaðstaða og í garðinum er billjarð og snakkbar. Stutt er að sækja í skemmtanalífið.

 

Leiksvæði er fyrir börnin, tennis og líkamsræktaraðstaða. Skemmtun í garðinum nokkrum sinnum í viku í júlí og ágúst. Á hótelinu er bar, veitingastaður og lítill súpermarkaður. Stutt er að sækja í skemmtanalífið.

 

Vistarverur

Hótelið er bæði með studíó íbúðir og íbúðir með einu svefnherbergi. Studíó íbúðirnar taka hámark 3 fullorðna og íbúðirnar með einu svefnherbergi taka hámark 4 fullorðna. Góðar íbúðir með eldunaraðstöðu, örbylgjuofni, helluborði, kæliskáp, brauðrist, kaffivél, síma og sjónvarpi. Auk þess er vifta, loftkæling og svalir á öllum íbúðum. Þrifið er 7 sinnum í viku.

Sjá á korti
Sjá heimasíðu
BYGGING

Byggt árið (1985)
Gestamóttaka (Allan sólarhringinn)
Fjöldi íbúða (189)
Fjöldi hæða (7)
Lyftur (true)
Endurnýjað árið (1995)

AÐSTAÐA

Matvöruverslun (Á hótelinu)
Veitingastaður (Já)
Billjarð (Já)
Barnalaug (Já)
Internet aðgangur (Nei)
Tennisvöllur (Já)
Bar (true)
Heilsulind (Já)

VISTARVERUR

Sjónvarp í íbúð (Já)
Loftkæling (Já)
Öryggishólf (Já, gegn gjaldi)
Brauðrist (Já)
Kaffivél (Já)
Ísskápur (Já)
Hárþurrka (Nei)

ÞRIF OFT Í VIKU

Þrif (7x í viku)
Handklæðaskipti (4x í viku)
Skipt á rúmum (2 x í viku)

ANNAÐ

Fjarlægð frá strönd (450 m)

HEIMILISFANG


KORT