Parque Cristóbal Tenerife
UPPLIFUN
Parque Cristóbal er glæsileg og frábærlega staðsett íbúðagisting í hjarta Las Americas strandarinnar. Aðeins 100 m í ströndina og fjöldi veitingastaða og verslana allt í kring. Hótelið var allt tekið í gegn og gert upp árið 2006. Svæðið nær yfir 30.000 fermetra og skartar 151 íbúð í friðsælum garði.
VISTARVERUR
Íbúðirnar eru mjög snyrtilegar er hver íbúð samanstendur af stofu, eldhúsi, einu eða tveimur svefnherbergjum og fullbúnu baðherbergi með baðkari og sturtu. Eldhúsið er vel búið með ísskáp, örbylgjuofni, brauðrist og kaffivél. Hver íbúð er með svalir / verönd, síma, viftu, öryggishólf og gervihnattasjónvarp. Þrifið er 5. í viku, skipt á handklæðum 2. í viku og skipt á rúmum 1. í viku. Gestir hafa frían aðgang að þráðlausu interneti í sundlaugargarði.
AÐSTAÐA
Á hótelinu eru 4 upphitaðar sundlaugar og þar af tvær barnalaugar og ferksvatnslaug. Frábær sólbaðsaðstaða með sólbekkjum og sólhlífum án endurgjalds ásamt sundlaugarbar fyrir þyrsta. Einnig geta gestir farið í líkamsrækt, skellt sér í nudd og slakað síðan á í nuddpottinum.
AFÞREYING
Fyrir íþróttagarpa er fjölmargt í boði; á hótelinu er körfu- og fótboltavöllur, blak, billjard, þythokkí, borðtennis, pílukast, boccia o.fl. Sjónvarpssalur með stórum flatskjá fyrir þá sem vilja gleyma sér yfir góðri bíómynd.
VEITINGASTAÐIR
Tveir veitingastaðir eru á hótelinu, einn á la carte staður og síðan hlaðborð með morgun-, hádegis- og kvöldmat. Hægt er að bóka annað hvort með morgunmat eða 'allt innifalið' (e. all-inclusive).
FYRIR BÖRNIN
Krakkaklúbbur fyrir yngstu kynslóðina og leikherbergi fyrir krakka á öllum aldri og á kvöldin er boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá fyrir börn sem fullorðna.
STAÐSETNING
Parque Cristóbal er frábærlega staðsett í hjarta Las Americas strandarinnar. Aðeins 100 m í ströndina og fjöldi veitingastaða, bara, kaffihúsa og verslana allt í kring. Fyrir þá sem vilja komast í golf er Arona golfvöllurinn aðeins 1 km í burtu. 14 km frá flugvellinum og 80 km frá höfuðborginni Santa Cruz