Gott að vita um Tenerife

Akstur til og frá flugvelli erlendis

Vegna mismunandi þarfa viðskiptavina okkar um ferðir til og frá flugvelli, á gististaði erlendis, er þessi þjónusta nú valfrjáls og fyrir þá sem það kjósa.

Bílaleiga

Framvísa skal gildu íslensku ökuskírteini. Lágmarksaldur leigutaka er 23 ár.

Drykkjarvatn

Það er betra að kaupa vatn til neyslu, þar sem vatnið á Tenerife er ekki eins gott og íslenska vatnið okkar. Það er okkur ekki skaðlegt en kaffið og teið verður betra ef hellt er á með keyptu vatni (agua mineral). Nauðsynlegt er að drekka meira en við gerum alla jafna heima.

Flugtími - vegalengdir

Flogið er í beinu leiguflugi til Tenerife. Flugið tekur um það bil fimm og hálfa klukkstund. Frá flugvelli til hótela á Playa de las Americas og Costa Adeje er um 20- 25 mínútna akstur.

Veðrið

Meðfylgjandi tafla sýnir meðalhita en hiti getur verið breytilegur frá ári til árs.

Meðalhiti (°C):

jan

feb

mars

apr.

maí

jún

júl

ágú

sep

okt

nóv

des

Lofthiti á daginn

21

21

22

22

24

26

29

29

28

26

24

22

Lofthiti á nóttunni

15

15

16

16

17

19

21

21

21

21

18

16

Hiti í sjónum

19

18

19

19

19

20

22

23

22

21

20

20

Landið

Kanaríeyjar eru 7 talsins og eru samtals um 7.300 km 2 . Tenerife er stærst þeirra, um 2.000 km 2 . Á Kanaríeyjum eru samtals 2 milljón íbúar.

Gjaldmiðill

Gjaldmiðillinn er Evra (EUR).Reiknaðu gengið á Oanda.

Greiðslukort

Hægt er að taka reiðufé út á kort í hraðbönkum sem eru víða. Hótel, stærri verslanir og veitingastaðir taka flest greiðslukort.

Handfarangur

Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur (pdf) .

Læknisþjónusta

Fararstjórar veita nánari upplýsingar.

Rafmagn

220 - 240 Volt.

Tímamismunur

Á veturna er sami tími og á Íslandi. Frá apríl til október er Tenerife klukkustund á undan Íslandi.

Samgöngur

Strætisvagnar ganga á milli þorpa á eyjunni og til höfuðborgarinnar Santa Cruz og Puerto de la Cruz á norðurhluta Tenerife. Leigubílar eru á hverju horni.

Verslun

Fjöldi merkjavöruverslana er á Costa Adeje og Playa de las Americas. Margar nýlegar verslunarmiðstöðvar undir opnum himni eru í Parque Santiago hverfinu á Playa de las Americas.

Í höfuðborginni Santa Cruz, La Laguna og Puerto de la Cruz eru nokkrar glæsilegar verslunarmiðstöðvar ásamt El Corte Inglés og Carrefour. Á Tenerife er hægt að kaupa allt sem hugurinn girnist á góðu verði.

Sjóböð

Á flestum baðströndum gilda ákveðnar öryggisreglur. Athugið að misjafnt er hvort einhver er á öryggisvakt á ströndinni.

  • Rauður fáni, bannað að fara í sjóinn, getur varðað sektum.
  • Gulur fáni, aðgát skal höfð við böð.
  • Grænn fáni, ládeyða, gott baðveður.

Tryggingar

Öllum er ráðlagt að huga að ferðatryggingum áður en lagt er af stað í ferðalag og athuga að allir fjölskyldumeðlimir séu vel tryggðir. Gott er að hafa meðferðis tryggingarskírteini.

Þjófnaður

Varist að hafa peningaveski í rass- eða brjóstvösum. Hengið ekki handtöskur á stólbak eða leggið frá ykkur. Takið ekki með ykkur verðmæti á ströndina og passið eigur ykkar alltaf vel. Mælt er með því að hótelgestir leigi öryggishólf og geymi öll verðmæti og vegabréf í þeim.

Þjórfé

Þjónustugjöld eru yfirleitt innifalin en hefð er að gefið sé þjórfé t.d. á veitingastöðum og leigubílum og þjónustustúlkur sem þrífa íbúðir.

Þjónusta Úrvals-Útsýnar

Íslenskir fararstjórar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann. Upplýsingar um viðtalstíma og nauðsynleg símanúmer er að finna í upplýsingamöppum á gististöðum.

Skemmtilegar vefsíður

www.webtenerife.com

www.tenerifeselect.com

www.auditoriodetenerife.com

Tenerife á Wikipedia