Playa de las Americas
Vinsælustu ferðamannabæirnir syðst á eyjunni eru Playa de las Americas og Costa Adeje, okkar staðir á Tenerife. Strandlengjan samanstendur af mörgum samliggjandi sandströndum eins og dekurströndinni fínu Playa del Duque sem tilheyrir bænum Costa Adeje. Göngustígur liggur meðfram sjónum og því hægt að ganga meðfram ströndunum.
Fjölbreytt afþreying er í boði á daginn fyrir alla aldurshópa en ekki síst fyrir börnin og unga fólkið. Stærsta go-kart braut í Evrópu er á eyjunni, vatnagarðurinn Aqualand með sundlaugarennibrautir og stórskemmtilega höfrungasýningu.
Splunkunýr og stórglæsilegur vatnsrennibrautargarður Siam Park, einn allra glæsilegasti vatnsrennibrautargarður Evrópu. Við ströndina er sjósportið, sjóskíði, bananabátar, siglingar og köfun.
Hagstætt verðlag er í verslanamiðstöðvunum, þar sem fjöldi verslana er með fínar merkjavörur. Það er tilvalið að taka nokkra hringi á golfvöllununm, en sex golfvellir eru á suðurhluta Tenerife, þar af einn 18 holu inni á sjálfu ferðamannasvæðinu.
Á kvöldin tekur við iðandi næturlíf. Gott úrval af fyrsta flokks veitingastöðum gefur fólki tækifæri á að borða góðan mat á sanngjörnu verði. Þegar líða tekur á kvöldið eru barir og næturklúbbar opnir fram undir morgun og ættu því flestir að finna skemmtun við sitt hæfi, hvort sem er dúndrandi stuð á klúbbunum eða rólegri stemning á börum. Spilavítið Casino gæti lokkað til að freista gæfunnar.