Masca - El Teide - Fjallaferð
Við byrjum á að keyra upp í gegnum þorpið Vilaflor sem er hæðsta byggða ból á eyjunni, í um 1,500 m hæð, og höldum leið okkar áfram í þjóðgarðinn Cañadas del Teide sem er í um 2,200 m hæð. þar rís tignarlega upp úr öskjunni El Teide, hæðsta fjall Spánar, 3,718 m hátt. Teide hefur haft gífurlegt aðdráttarafl fyrir eyjunna í gegnum tíðina. Þar er fjölsóttasti þjóðgarður Spánar enda landslagið þar stórbrotið.
Við borðum svo hádegismat í fjallaþorpinu Santiago del Teide og komum aftur í bæinn kl.16:00.
Verð: 55 evrur fyrir fullorðinn en 25 evrur fyrir börn.
Güimar "píramídaferð" med tapas og vínsmökkun
1/2 dagsferð til þorpsins Güimar í 45 mínútna akstursfjarlægð. Þar virðum við fyrir okkur hina merkilegu píramida sem þar er að finna, veltum fyrir okkur uppruna þeirra, spáum í hina dularfullu frumbyggja Tenerife og síðast en ekki síst fetum í fótspor fræði- og ævintýramannsins Thor Heyerdalh.
Í seinni hluta ferðarinnar heimsækjum vid fallega strandbæinn Puerta Güimar þar sem glæsilegt smáréttahlaðborð med spænskum tapas-réttum bíður okkar á veitingarstað við höfnina, ásamt víni eyjarskeggja og þar eigum vid notarlega stund saman.
Verð: 39 evrur fyrir fullorðinn en 19 evrur fyrir börn.
Loro Parque
Haldið er með rútu á norðurhluta eyjunnar, til Puerto de la Cruz þar sem er að finna Loro Parque, einstaka veröld dýra. Ein magnaðasta mörgæsanýlenda utan heimskautasvæðanna, þar sem 12 tonn af snjó falla daglega, gæti hresst þá við sem sakna Íslands eða lundarnir frá Vestmannaeyjum sem eru gestum og gangandi til sýnis.
Frábærar sýningar þar sem höfrungar, háhyrningar, sæljón og páfagaukar leika listir sínar eru þó sennilega aðalaðdráttaraflið í Loro Parque. Þar má einnig sjá tígrísdýr, górillur, höfrunga, skjaldbökur, hákarla og ýmis litskrúðug sjávardýr svo fátt eitt sé nefnt, en sumum þessara dýra hefur verið bjargað úr ótrúlegum aðstæðum. Til dæmis fannst einn af hákörlunum í handfarangri farþega á London Heathrow.
Fyrir þá sem þurfa minni tíma í garðinum gæti verið gaman að fá sér far með "mini lestinni" sem gengur á 20 mín., fresti milli Loro Parque og miðbæjar Puerto de la Cruz en þar er ógrynni af verslunum og veitingastöðum enda var bærinn á sínum tíma einn helsti ferðamannastaður Kanaríeyja.
Verð: 55 evrur fyrir fullorðinn en 25 evrur fyrir börn. 0-6 ára fá frítt.
Innifalið í verði: Rútuferð, íslensk leiðsögn og aðgangseyrir inn í Loro Parque.
Peter Pan hvalaskoðun
Sigling og hvalaskoðun á Atlantshafi. Haldið er út á Atlanshafið frá höfninni Puerto de Colón (Kólumbusarhöfn) á Costa Adeje hluta svæðisins. Rétt úti fyrir ströndunum eru bæði hvalir og höfrungar í allri sinni dýrð á heimaslóðum í hafinu. Siglt er í áttina að La Gomera og Los Gigantes, sem svipar til Látrabjarga.
Í siglingunni er boðið upp á grillmat o.fl. sem er innifalinn í verði ferðarinnar.
Farþegar eru sóttir af Neptuno siglingum. Skemmtileg og stutt ferð (3 tímar) fyrir fólk á öllum aldri.
Verð: 37 evrur fyrir fullorðinn en 19 evrur fyrir börn.
Innifalið: Rútuferð niður á höfn, sigling og hádegismatur.
Tenerife - hringferð
Haldið er réttsælis í hringferð um eyjuna og farið í áttina að Los Gigantes, Tenerífsku "Látrabjörgunum". Komið er í morgunkaffi til Garachico þar sem stórkostlegs útsýnis er notið yfir hinn sérkennilega bæ sem fór undir hraun fyrir um 300 árum. Icod de Los Vinos verður á vegi okkar en þar er nauðsynlegt að kíkja á Drekatréð, sem talið er að sé allt að 1000 ára gamalt, ásamt kirkju Heilags Markúsar.
Við kirkjutorgið er handverksmarkaður listamanna og boðið er upp á vín og ostasmökkun á knæpu við torgið. Þaðan er svo haldið í átt að Pueblo Chico sem er skemmtilegur húsasafnagarður, þar sem jafnframt er snæddur 3ja rétta hádegisverður.
Gamla glæsiborgin La Orotava er næsti viðkomustaður. Kanarískt óðalssetur frá 16.öld, þar sem einn stærsti handverksmarkaður eyjunnar er, er heimsótt.
Verð: 55 evrur fyrir fullorðinn en 25 evrur fyrir börn.
Innifalið í verði ferðarinnar: Rútuferð, hádegisverður og íslensk leiðsögn.
Pirámide de Arona - skemmtikvöld
Boðið er upp á stórglæsilegan söngleik, danssýningu, tónleika, í leikhúsinu Pirámide de Arona, sem er við aðalverslunargötuna, rétt hjá hótelinu Parque Santiago á Playa de las Americas.
Fyrri hluti sýningarinnar er klassískur spænskur ballett, þar sem á fjórða tug spænskra dansara og sígaunatónlistarmanna taka þátt í mjög glæsilegri sýningu. Síðan tekur við verkið Airam í nýstárlegri uppsetningu Carmen Mota.
Kvöldskemmtun fyrir allan aldur og alla áhugasama um dans- og tónlist!
Verð: 39 evrur fyrir fullorðinn en 19 evrur fyrir börn.
Innifalið: Leik- og danssýningin.
Athugið að engin rúta er í boði, gestir sjá sjálfir um að koma sér á staðinn.