Benidorm
Staður sóldýrkenda
Benidorm er öllum sóldýrkendum vel kunn enda einn vinsælasti áfangastaður
sóldýrkandi Evrópubúa. Benidorm sameinar fjörugt strandlíf og víðfrægt
næturlíf og þangað flykkist fólk til að njóta tilverunnar, hvílast og
skemmta sér.
Á aðra hönd er Miðjarðarhaf við sólhvítar sandstrendur, á hina rís
fjallahringur sem lumar á yndislegum þorpum og óviðjafnanlegum
ævintýrum.
Rétt ofan við Benidorm er Terra Mitica,
nýr og glæsilegur fjölskyldu- og skemmtigarður. Í garðinum er fjöldi
leiktækja, glæsilegra veitingastaða og hápunkturinn fyrir þá hugrökku
er svo stórkostlegasti rússíbani Spánar.
Aqualandia er fallegur og tilkomumikill vatnsskemmtigarður fyrir alla fjölskylduna og Mundomar er sædýragarður með höfrunga- og sæljónasýningum.