Algengar spurningar og svör við þeim

Finnir þú ekki svarið við þinni spurningu hér að neðan geturðu sent okkur tölvupóst.

Hvernig fæ ég besta verðið?

Ódýrustu sætin bókast fyrst!

Við verðlagningu ferða hjá okkur fylgjum við þeirri einföldu reglu að þeir sem bóka fyrst greiði minnst!


Þetta fyrirkomulag er vel þekkt meðal flugfélaga um allan heim og hefur reynst okkur vel. Með þessu viljum við þakka viðskiptavinum tryggðina við okkur og hvetja þá til að bóka fyrr.

Athugaðu að þetta þýðir að verðið sem þú sérð í bókunarvélinni í dag þarf ekki að vera í boði á morgun, hvað þá eftir mánuð - það fer alfarið eftir því hversu mörg sæti hafa bókast í millitíðinni.

-