Algengar spurningar og svör við þeim

Finnir þú ekki svarið við þinni spurningu hér að neðan geturðu sent okkur tölvupóst.

Er hægt að nota MasterCard ferðaávísun hjá ykkur?

Leiðbeiningar um notkun MasterCard ferðaávísunar

<>
  1. Þú bókar og gengur frá flugferðinni á vef ferðaskrifstofunnar
  2. Þú greiðir alla flugferðina með MasterCard
  3. Þú sendir okkur afrit farseðils/ferðagagna og framselda ávísunina (frumrit ávísunar)
  4. Þú færð andvirði ávísunarinnar greidda inn á kortið þitt
  5. Hámarks nýting miðast alltaf við andvirði ferðakostnaðar
  6. Sé ávísun ekki nýtt að fullu þegar ferð er greidd er útbúin ný ávísun fyrir mismuninum að því gefnu að fjárhæð sé ekki fyrnd
  7. Greiða verður allan ferðakostnað með MasterCard kortinu svo hægt sé að nota MasterCard ferðaávísun til lækkunar á ferðakostnaði.

MasterCard ferðaávísun verður að vera í gildi þegar flugferð er greidd!

-