Brottfarar- og flugtímar eru ætíð áætlaðir og háðir breytingum vegna veðurs, af tæknilegum, eða öðrum óviðráðanlegum orsökum. Ferðaskrifstofan ber hvorki ábyrgð né skaðabótaskyldu ef breytingar verða á flugi vegna þessa.
Miðað er við að allir áfangastaðir séu í beinu flugi, millilendingar eru mjög kostnaðarsamar og ekki gerðar að óþörfu. Þó getum við ekki ábyrgst að ekki komi til millilendingar sérstaklega í lengra flugi.
Ákvörðun um millilendingu er í höndum flugstjóra að hluta eða öllu leyti, og getur t.d. komið til skapist óviðráðanlegar aðstæður sem ekki er mögulegt að afstýra, jafnvel þótt gerðar hafi verið allar nauðsynlegar ráðstafanir. Þetta er eingöngu gert til að tryggja flugöryggi. T.d. geta slíkar aðstæður skapast af völdum bilana, veðurskilyrða sem samræmast ekki kröfum sem gerðar eru til viðkomandi flugs, öryggisáhættu til dæmis allt of mikilli yfirvigt.
Ferðaskrifstofa Íslands getur ekki borið ábyrgð á ófyrirsjáanlegum aðstæðum, sem ferðaskrifstofan fær engu um ráðið og hefði ekki getað komið í veg fyrir afleiðingar þeirra.