Algengar spurningar og svör við þeim

Finnir þú ekki svarið við þinni spurningu hér að neðan geturðu sent okkur tölvupóst.

Hvernig bóka ég ferð?

Til að bóka flug og/eða gistingu er einfaldast að nota vefinn, en auk þess er hægt að hringja í bókunarsíma okkar, eða koma á skrifstofu okkar (sjá símanúmer og heimilisfang neðst á síðunni).

Bókun í síma eða á skrifstofu

Bæði skrifstofa okkar og bókunarsími okkar er opinn alla virka daga frá kl. 9:00 til 17:00. Þar færðu aðstoð og þjónustu og nýtur reynslu starfsfólks okkar.

Við vekjum athygli á því að þegar bókað er í gegnum síma eða á skrifstofu bætist við bókunargjald, kr. 3.900 á hvern farþega.

Bókun á vefnum

  • Veljið brottfararstað - Frá
  • Veljið áfangastað - Til
  • Veljið dagsetningu brottfarar - Brottför
  • Velja dagsetningu heimkomu - Heimkoma - á ekki við ef verið er að bóka aðra leið
  • Velja fjölda farþega - Fullorðnir - 12 ára og eldri, Börn - 2-11 ára og Ungbörn - yngri en 2 ára
  • Viljirðu bóka flug aðra leið, þarf að taka hakið úr Báðar leiðir
  • Viljirðu aðeins bóka flug, en ekki gistingu, þarf að taka hakið úr Hótel
  • Ýta á leita

Flug

  • Séu fleiri en eitt flug í boði sama dag þarf að velja það flug sem hentar betur

Hótel

  • Næsta síða sýnir flugtíma og lista yfir þau hótel sem eru í boði á völdum dagsetningum. Öll verð eru birt með flugvallasköttum.
  • Með því að smella á Meira er hægt að sjá frekari upplýsingar um hótelið
  • Veljið það hótel sem hentar best og ýtið því næst á Áfram

Farþegar

  • Á næstu síðu slærðu inn upplýsingar um farþega.
  • Athugið að fylla þarf út alla reiti, nema að fyrir farþega sem ekki hafa íslenska kennitölu er nóg að slá inn fæðingardag
  • Kynnið ykkur ferðaskilmála okkar rækilega og ef þið samþykkið þá, hakið við það
  • Ýtið því næst á Áfram

Þjónusta

  • Á næstu síðu er valin aukaþjónusta fyrir hvern farþega fyrir sig - akstur erlendis og forfallagjald

Greiðsla

  • Greiðslusíðan er lokasíða fyrir bókun. Athugið að fram að þessu hefur þú ekki bókað þér þá gistingu eða flug sem þú ert að skoða
  • Veldu greiðsluleið og sláðu inn upplýsingar um kreditkortið sem greiða á með
  • Þessu næst þarf að gefa frekari upplýsingar um Viðskiptamann, sem er tengiliður vegna bókunarinnar - fær tölvupóstinn með staðfestingunni
  • Viðskiptamaður þarf ekki að vera farþegi

Kvittun

  • Þegar staðfestingingin kemur upp með bókunarnúmeri hefur bókunin tekist
  • Afrit af staðfestingunni er sent sem pdf-skjal á netfangið sem gefið var upp fyrir Viðskiptamann
  • Vinsamlegast lesið ferðagögnin vel yfir til að ganga úr skugga um að allt sé eins og það á að vera
  • Til þess að skoða pdf-skjöl þarf Adobe Reader, sem er ókeypis hugbúnaður. Þú getur sótt Adobe Reader hér: http://get.adobe.com/reader/
  • Prentaðu ferðagögnin út og framvísaðu útprentuninni, ásamt vegabréfum allra farþega við innritun á flugvelli
  • Berist tölvupósturinn ekki fljótlega getur verið að hann hafi verið flokkaður sem ruslpóstur (e. spam eða junk mail). Sé póstinn ekki að finna þar skaltu hafa samband

Góða ferð!

-