Sígilt safarí í Kenýa
Dagsetningar
15. - 29. október 2009
Um ferðina
Karen Blixen safnið
Ferðin hefst í höfuðborg Kenýa, Naíróbí þar sem meðal annars verður
farið á Karen Blixen safnið, gíraffagarð og munaðarlausir fílskálfar
heimsóttir.
Leiðin liggur svo í þekktasta þjóðgarð Kenýa, Masai Mara
þjóðgarðinn. Í Masai Mara er að finna helstu dýr sem við tengjum við
Afríku meðal annars, fíla, ljón, hlébarða, nashyrninga, buffala,
gíraffa og antilópur.
Frá safaríi og villidýrum verður flogið til hinnar fallegu strandar
Diani sem er við Indlandshafið. Þar er eins og tíminn standi í stað,
pálmatrén blakta í golunni, sjórinn er fallega blágrænn og þar er eitt
fallegasta kóralrif í heimi. Það er dásamlegt að liggja undir pálmatré
á hvítsendinni ströndinni og horfa á veiðimennina koma að landi á
eintrjánungum með afla dagsins eða fara í sjóstangaveiði, köfun eða
skoða skrautfiska.
Við ströndina heimsækjum við þorp Digo-ættflokksins þar sem við
fræðumst um siði og venjur þeirra. Í lok ferðar verður farið til hinnar
sögufrægu hafnarborgar Mombasa þar sem í boði er að ganga um gamla
hluta borgarinnar og fræðst um sögu og menningu þessarar merkilegu
verslunar- og viðskiptaborgar.
Endað verður á kvöldsiglingu undir stjörnubjörtum Afríkuhimni.
Skoðaðu myndaalbúmið sem hefur að geyma ótrúlegar myndir sem sýna hvað þú gætir átt von á í þessari ógleymanlegu ferð.
Ferðin er unnin í samstarfi við Afríku, ævintýraferðir
Bæklingur um ferðina frá Afríka, ævintýraferðir (pdf)