Bangkok, Hua Hin og Chaing Mai

Í grunninn til er þessi ferð kjarninn úr hinn góðu Bangkok og Hua Hin ferð, en með ferðafléttu upp til fjalla Taílands, svo norðarlega er farið að í borginni Chiang Mai eru ferðalangar komnir að rótum Himanlæjafjalla. Sem fyrr er byrjað á nokkrum góðum dögum í Bangkok þar sem fjölbreytt afþreying og þjónusta er til staðar og með íslenskri umsjón og leiðsögn innlendra fararstjóra er tryggt að það sem er efst á baugi í borginni fari ekki framhjá ferðalöngum Úrval Útsýn í Bangkok. Þegar góðum dögum í Bangkok lýkur er flogið norður til Chiang Mai sem er önnur stærsta borg Bangkok en þó svo gerólík höfuðborginni. Chiang Mai er fremur bær með myndarlegum brag fremur en borg. Húsin eru flest lágreist og er byggðin því dreifð um dalina. Forn saga Chiang Mai, sem lengi var höfuðstaður veldis sem nefndist Lanna, er víða sjánleg t.d. með síkinu og voldugum virkisveggjum sem umlykja elsta hluta borgarinnar. Þriðji kaflinni í þessari góðu reisu er dvöl í strandbænum Hua Hin. Ekið er í rólegheitum með innlendum fararstjóra um ósa Chao Phraya árinnar, um víðfeðma saltvinnslusléttur og græna ávaxta og hrísgrjónaakra á suðurleið frá Bangkok. Komið er við í gömlum og athyglisverðum bæ sem nefnist Petchaburi þar sem fornar sveitahallir konunga Taílands eru skoðaðar þar sem þær sitja myndarlegar á Wanghæðinni auk þess sem tækifæri gefst á að skoða musteri frá tíma veldis Angkor í Kambódíu. Hua Hin er ljúfur og þægilegur bær sem býður uppá fjölbreytta þjónustu og afþreyingu. Hestaleigur á ströndinni, bátaleigur, skútusiglingar, fjölbreytt úrval veitingastaða og verslana. Sterkar andstæður þriggja ólíkra staða í Taílandi, vönduð hótel, heildstæð umsjón og vel ígrunduðu ferðaáætlun leggur grunninn að einstakri og ríkulegri ferð þar sem unaði og ævintýrum er gert jafnt undir höfuð.