Bangkok og Hua Hin
Hér hefur verið sniðin kjarnmikil ferð sem opnar unað og ævintýri Taílands á hnitmiðaðan og spennandi hátt. Byrjað er að lenda í Bangkok, hrista af sér ferðaslenið og ná áttum í þessari ögrandi en um leið ljúfu borg. Gætt er að því að hótelin sé staðsett á bestu stöðum í borginni svo enginn tími tapist í asískum umferðarteppum. Með íslenskri umsjón á landi og ferðaupplýsingum sem eru eins ferskar og ilmandi núðlusúpan á næsta horni, er tryggt að ferðalangar Úrval Útsýni í Taílandi eiga kost á því besta sem Bangkok bíður upp á.
Annar kaflinni í þessari góðu reisu er dvöl í strandbænum Hua Hin. Ekið er í rólegheitum með innlendum fararstjóra um ósa Chao Phraya árinnar, um víðfeðma saltvinnslusléttur og græna ávaxta og hrísgrjónaakra á suðurleið frá Bangkok. Komið er við í gömlum og athyglisverðum bæ sem nefnist Petchaburi þar sem fornar sveitahallir konunga Taílands eru skoðaðar þar sem þær sitja myndarlegar á Wanghæðinni auk þess sem tækifæri gefst á að skoða musteri frá tíma veldis Angkor í Kambódíu.
Hua Hin er einstakur bær sem birtir gestum sínum sterk og heillandi einkenni Taílands auk þess að bjóða þjónustu og atlæti við ferðafólk sem fáir staðir í Asíu ná að jafna. Fjölbreytt þjónusta, langar krítarhvítar strendur, breiður Taílandsflói, iðandi mannlíf og margbreytileg náttúra.
Í þessari ferð næst að sameina upplifun og afslöppun á þægilegan hátt með strönd og borg.