BETT 2012

Tölvu- og hugbúnaðarsýning fyrir fagaðila í skólastarfi

Þá er komið að því að huga að BETT sýningunni sem verður í London 11. - 15. janúar 2012 og mun Nýherji í samstarfi við Úrval Útsýn bjóða upp á skipulagða ferð. Flogið er með Icelandair og gist á Thistle Marble Arch hóteli í hjarta London. Mikilvægt er að bóka sem fyrst til þess að tryggja lægsta mögulega verð.

98% gesta segja að BETT sé besta skólasýningin í Bretlandi
90% gesta gefa sýningunni frábæra einkunn til þess að finna nýjungar.

Bókaðu ferðina á BETT í bókunarvélinni hér til vinstri!

Aðgangur ókeypis, forskráning á vefnum flýtir fyrir. - það getur verið röð í skráningu á staðnum.

Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar.

Helstu áherslur í rekstri skólaumhverfis í dag eru hagræðing í rekstri tölvukerfa og opinn hugbúnaður (open source) og getur BETT veitt innsýn í lausnir sem markaðurinn er að bjóða. Einnig gefur þessi ferð færi á að hitta starfsfólk menntageirans á öllum sviðum og kynnast reynslu annara.

Ferðatilhögun

Frá Keflavík 11. janúar kl 09:00, lent í London, koma á hótel 2 tímum síðar.
Frá London 15. janúar annað hvort með hádegisflugi eða kvöldflugi.

Gist verður á Thistel Marble Arch, 4 stjörnu "Art Deco" hóteli sem staðsett er á Oxford Street á besta stað í miðborg London. Örstutt í allt! Frábær þjónusta á hóteli, stór og vinalegur hótelbar.

Verð á mann í tvíbýli: 114.900
Verð á mann í einbýli: 144.900

Frá BETT 2010

Innifalið í ferð:
• Flug,
• Skattar,
• Rútur að og frá flugvelli,
• Gisting á Thiste Marble Arch 4* í 4 nætur,
• Veglegur enskur morgunmatur,
• Rútur að og frá sýningu 2 daga,
• Kokkteill og pinnamatur á fimmtudagskvöldi
• Íslensk fararstjórn,