Það er stíll yfir Barcelona sem margir telja fallegustu borg í Evrópu. Barcelona er heillandi heimsborg, iðandi af lífi og uppfull af menningu og listum, sögu og söfnum. Spánverjar hafa átt frábæra listamenn og þekktustu listasöfn Barcelona eru helguð Pablo Picasso og Joan Miró. Fallegar og sérstæðar byggingar arkitektsins Gaudís prýða borgina en þar ber hæst dómkirkjuna frægu La Sagrada Familia. Næturlífið í Barcelona spannar allt litrófið og er kröftugt og fjörmikið. Kaffihúsin, skemmtistaðirnir og flamenkóklúbbarnir í miðbænum iða af lífi. Gaman er að njóta t.a.m. kvöldsins í Spænska þorpinu (Poble Espanyol) á Montjuic-hæðinni, eða við Ólympíuhöfnina og á Maremagnum-svæðinu. Borg til að skoða, skemmta sér, snæða góðan mat og kaupa hátískuvörur á góðu verði. Borgin, sem heillar Íslendinga ár eftir ár - þig langar aftur til Barcelona.